Skólamálaráð Kennarasambands Íslands starfar skv. lögum KÍ og samþykktum þings KÍ. Skólastefna KÍ er jafnan samþykkt á þingi KÍ sem haldið er á fjögurra ára fresti. Skólastefnan gildir til 2030.

Menntun er ein mikilvægasta grunnstoð velferðar og lykillinn að farsælu og jöfnu samfélagi. Kennarasamband Íslands (KÍ), sem fagfélag kennara, náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda, ber ábyrgð á að móta skýra stefnu um faglegt skólastarf sem styrkir menntakerfið á öllum skólastigum og skólagerðum. Skólastefna KÍ kemur fram með skýr sjónarmið um faglega forystu þessara hópa. Sérfræðiþekking þeirra á að leiða, styrkja og styðja við allt skólastarf.
Hlutverk menntunar er að stuðla að velferð og þroska barna og ungmenna, styrkja sjálfsmynd þeirra, efla félagsfærni og lífsleikni og leggja grunn að virkri þátttöku þeirra í lýðræðissamfélagi.
Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur kenna, miðla og virkja börn og ungmenni í þekkingarleit, stuðla að þroska þeirra og farsæld og laða fram það besta hjá hverjum og einum.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti; sköpun, jafnrétti, velferð, læsi, lýðræði og mannréttindi, menntun til sjálfbærni og gagnrýna hugsun. Huga skal að jafnvægi á milli bók -, list- og verknáms og virða þessar námsleiðir sem jafnmikilvægar.
Menntun og skólastarf skal endurspegla hin fjölbreyttu hlutverk og markmið sem koma fram í lögum.
Menntun kennara, náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda skal veita góðan undirbúning og tryggja hæfni til að sinna þeim margvíslegu áskorunum sem starf þeirra krefst. Efla þarf kennaramenntun enn frekar og sníða að þörfum og kröfum nútímasamfélags.
Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur þurfa að þekkja og geta beitt árangursríkum aðferðum í starfi sem stuðla að inngildandi skólastarfi og gæðakennslu. Mikilvægt er að KÍ sé virkur þátttakandi í samstarfi menntayfirvalda og háskólasamfélagsins um kennaramenntun, skólaþróun og menntarannsóknir.
Öflug kennaramenntun er forsenda faglegs skólastarfs.
Fagmennska er hornsteinn í starfi kennara, náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda og lykilforsenda þess að hægt sé að tryggja ábyrgð og gæði innan menntakerfisins. Fagmennska felur í sér að þessir hópar og annað fagfólkii byggi störf sín á þekkingu, reynslu, rannsóknum og siðferðilegum grunni og viðhaldi og þrói hæfni sína í takt við þarfir nemenda og samfélagsins.
Fagmennsku og sérfræðiþekkingu kennara, náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda þarf að tryggja með fjölbreyttri starfsþróun.
Til að tryggja gæði náms og kennslu er mikilvægt að nýta sérfræðiþekkingu félagsfólks KÍ, ábyrgjast fjölbreytta og hagnýta starfsþróun og gæta fagmennsku í hvívetna.
Faglegt sjálfræði er undirstaða þess að menntakerfið geti þróast í takt við þarfir barna, ungmenna og samfélagsins. Það vísar til þess frelsis og ábyrgðar sem fagfólk hefur til að taka upplýstar ákvarðanir í starfi á grundvelli fræðilegrar þekkingar, fagmennsku, siðferðis og reynslu.
Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur vinna í samstarfi við annað fagfólk, innan ramma laga, námskráa og skólastefnu, en njóta þess frelsis að móta eigin starfshætti og áherslur í starfi.
Faglegt sjálfræði skóla tryggir að skólar geti þróað eigin áherslur og starfshætti í samræmi við þarfir barna, ungmenna og samfélagsins, á grundvelli sérfræðiþekkingar og reynslu.
Faglegt sjálfræði félagsfólks KÍ og skóla styrkir fagmennsku, eykur ábyrgð og skapar rými fyrir nýsköpun, fjölbreytni og markvissa þróun sem leiðir til betra náms og sterkara skólasamfélags.
Starfsþróun er mikilvægur þáttur í starfi kennara, náms – og starfsráðgjafa og skólastjórnenda. Starfsþróun er stöðugt lærdómsferli þar sem þessir hópar efla hæfni sína, þekkingu og færni með það að markmiði að vaxa í starfi, bæta árangur sinn og auka starfsánægju, allt með það fyrir augum að auka gæði náms.
Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur þurfa að geta lagað sig að síbreytilegum aðstæðum og veitt öllum börnum og ungmennum menntun í takt við samtímann og framtíðina. Vaxandi áhersla er lögð á að starfsþróun fari fram innan lærdómssamfélaga skóla þar sem þessir hópar vinna saman, læra hver af öðrum og bera sameiginlega ábyrgð á gæðamenntun.
Fjölbreytt og hagnýt starfsþróun er grundvallaratriði í öllu skólastarfi.

Faglegt sjálfræði félagsfólks KÍ og skóla styrkir fagmennsku, eykur ábyrgð og skapar rými fyrir nýsköpun, fjölbreytni og markvissa þróun sem leiðir til betra náms og sterkara skólasamfélags.
Starfstengd leiðsögn er undirstaða þess að nýliðarv eflist og vaxi í starfi, byggi upp faglega sjálfsmynd og þrói gæðakennslu.
Rannsóknir sýna að góð starfstengd leiðsögn geti haft úrslitaáhrif á velgengni nýliða og dregið verulega úr brottfalli úr starfi. Nýliðar sem fá markvissa leiðsögn eru líklegri til að þróa betri kennsluaðferðir, upplifa meira starfsöryggi og hafa jákvæðari áhrif á námsárangur barna og ungmenna.
Tryggja skal nýliðum starfstengda leiðsögn þrjú fyrstu starfsárin.
Skólaþróun er lifandi ferli þar sem allt skólasamfélagið sameinast í virku samtali og samvinnu til að bæta nám og kennslu með hliðsjón af reynslu og rannsóknum.
Með því að rýna reglulega í vinnubrögð og læra hver af öðrum skapa kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur lærdómssamfélag sem byggir á faglegri ígrundun og nýsköpun. Undirstaða þessara framfara er vinnuumhverfi sem einkennist af gagnkvæmu trausti, virðingu og farsæld þar sem vellíðan allra þeirra sem starfa saman í skólum er ávallt í fyrirrúmi. Öflug skólaþróun leiðir af sér stöðugan vöxt og sterkari framtíðarsýn.
Skólaþróun, þar sem faglegt frelsi og samvinna mætast, tryggir farsæld og vöxt alls skólasamfélagsins.
Margbreytileiki og inngilding í skólastarfi eru lykilþættir lýðræðislegs og réttláts samfélags. Það styrkir bæði einstaklinga og samfélagið að tryggja að öll börn og ungmenni, óháð kyni, kynþætti, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum, kyntjáningu, aldri, fötlun, skertri starfsgetu, heilsufari, þjóðerni, litarhætti, uppruna, trúarbrögðum, skoðunum, menningu eða félagslegri stöðu fái jöfn tækifæri til náms og þátttöku.
Inngildandi skólastarf byggir á virðingu, margbreytileika og samvinnu og stuðlar að vellíðan og sterkri sjálfsmynd. Þegar skólasamfélagið vinnur saman að því að skapa umhverfi þar sem öll börn og ungmenni tilheyra og fá að blómstra, skapast tækifæri til að efla félagsfærni, víðsýni og samkennd.
Menntun er öflugasta leiðin til að vinna gegn félagslegum ójöfnuði og lagskiptingu samfélagsins. Með inngildingu og jafnrétti að leiðarljósi má skapa réttlátara samfélag fyrir öll.
Jafnrétti í skólastarfi er grundvallaratriði. Kennarar, náms – og starfsráðgjafar og skólastjórnendur gegna lykilhlutverki í því að móta viðhorf og gildi næstu kynslóða. Þegar stuðlað er að jafnréttishugsun á öllum skólastigum og skólagerðum læra börn og ungmenni að virða margbreytileika og hafna staðalmyndum byggðum á úreltum hugmyndum og gildum.
Mikilvægt er að stuðla að skólasamfélagi þar sem fordómar ná ekki fótfestu og jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllu skólastarfi þannig að öll börn og ungmenni nái að blómstra á sínum forsendum.
Jafnrétti í skólastarfi er öflugasta leið hvers samfélags til að draga úr fordómum og stuðla að því að öll börn og ungmenni fái að njóta sín á eigin forsendum.

Mikilvægt er að stuðla að skólasamfélagi þar sem fordómar ná ekki fótfestu og jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllu skólastarfi þannig að öll börn og ungmenni nái að blómstra á sínum forsendum.
Samstarf heimila og skóla er forsenda farsællar skólagöngu barna og ungmenna. Gott samstarf hefur jákvæð áhrif á vellíðan, félagsfærni og námsárangur.
Í slíku samstarfi þarf gagnkvæmt traust og virðingu. Virk þátttaka og opin samskipti milli allra styrkja tengsl, auka líkur á að börn og ungmenni upplifi skólann sem öruggan stað og stuðla að jákvæðum skólabrag.
Uppbyggilegt samstarf heimila og skóla hefur jákvæð áhrif á börn og ungmenni og er þeim til hagsbóta.
Tækniþróun hefur sífellt meiri áhrif á skólastarf og menntun. Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur skólanna eru lykilaðilar bæði í stefnumótun og framkvæmd og þurfa raunverulegt umboð og traust til að móta skólakerfið.
Þó að gervigreind og tækni geti stutt við nám og kennslu kemur hún ekki í stað mannlegra samskipta, dómgreindar og tengsla. Kennarar, náms – og starfsráðgjafar og skólastjórnendur gegna lykilhlutverki í að móta hvernig tæknin er notuð á ábyrgan og gagnrýninn hátt.
Menntakerfið skal vera vel í stakk búið til að takast á við hraða tækniþróun, með áherslu á hæfni, siðferði og velferð félagsfólks KÍ, barna og ungmenna.
Gott starfsumhverfi hefur bein áhrif á líðan kennara, náms- og starfsráðgjafa, skólastjórnenda, barna og ungmenna og eykur gæði náms og kennslu .
Góður aðbúnaður til kennslu og samstarfs, þ.m.t. viðunandi húsnæði, tækjabúnaður og nægur tími til faglegrar þróunar eru grundvallarforsendur heilbrigðs starfsumhverfis þar sem kennarar, náms- og starfsráðgjafar, skólastjórnendur, börn og ungmenni geta dafnað. Tryggja skal þeim öruggt starfsumhverfi, laust við ofbeldi og áreitni.
Mikilvægt er að huga að hópastærðum barna og ungmenna á öllum skólastigum og skólagerðum.
Störf kennara, náms- og starfsráðgjafa og skólastjórnenda eiga að vera samkeppnishæf við önnur sérfræðistörf í samfélaginu. Launakjör skulu endurspegla menntun, virði og ábyrgð.
Tryggja skal hagsmuni og velferð félagsfólks KÍ, barna og ungmenna með heilnæmu starfsumhverfi.
Stjórn KÍ fer með ábyrgð á framkvæmd stefnunnar og getur falið skólamálaráði að undirbúa, framkvæma og hafa yfirumsjón með markmiðum hennar.
Skólastefna KÍ nær til alls félagsfólks Kennarasambands Íslands.
Skólastefnu KÍ skal endurskoða á fjögurra ára fresti. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á níunda þingi KÍ 2026