Vinnuumhverfisstefna Kennarasambands Íslands fyrir árin 2026 til 2030 var samþykkt á níunda þingi KÍ 2026.

Stefna Kennarasambands Íslands (KÍ) í vinnuumhverfismálum er samþykkt á þingi KÍ. Stefnan byggir á lögum (I) og reglugerðum (II) sem varða vinnuumhverfi sem og niðurstöðum þeirra rannsókna sem gerðar hafa verið á vinnuumhverfi kennara (III). Einnig er stuðst við reglur og leiðbeiningar Vinnueftirlits ríkisins. Sérstök áhersla er á sálfélagslegt vinnuumhverfi þótt horft sé til vinnuumhverfis í heild.
KÍ hefur að markmiði að stuðla að bættu vinnuumhverfi með því að efla þekkingu félagsfólks, starfsfólks og kjörinna fulltrúa sem starfa á skrifstofu KÍ á áhættuþáttum þeim sem finnast í starfsumhverfi kennara. Stefnunni er skipt í tvo meginþætti, sálfélagslegt vinnuumhverfi annars vegar og innivist, aðbúnað og öryggi hins vegar.
Sálfélagslegt vinnuumhverfi vísar til sálrænna og félagslegra þátta vinnuumhverfis. Samkvæmt lögum eiga atvinnurekendur að tryggja öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks með því að greina þá áhættuþætti í vinnuumhverfinu sem tengjast m.a. skipulagi, stjórnun, samskiptum og vinnustaðamenningu.
Vinnustaðamenning vísar til þeirra gilda, venja og viðhorfa sem ríkja á vinnustað og samskiptahátta sem eru samþykktir meðal starfsfólks. Heilbrigð vinnustaðamenningi (V) er lykilþáttur þess að starfsfólk upplifi öryggi og vellíðan. Þessa þætti ber að meta reglulega (V). Samkvæmt lögum ber atvinnurekendum að setja hverjum vinnustað áætlun um öryggi og heilbrigði.
Umhverfisþættir vinnustaðar, allur aðbúnaður og öryggisþættir hafa veruleg áhrif á líkamlega heilsu og vellíðan í vinnu. Innivist er hugtak sem vísar til allra þeirra þátta sem snerta vellíðan einstaklinga á vinnustað. Hér er ekki aðeins átt við hljóðvist, ljósvist og loftgæði heldur einnig öryggi, aðgengi, hreinlæti, hitastig, aðbúnað og tengsl við náttúru.
Samkvæmt lögum eiga atvinnurekendur að tryggja öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks með því m.a. að greina þá áhættuþætti í vinnuumhverfinu sem tengjast fyrrgreindum þáttum og útbúa áætlun um öryggi og heilbrigði vinnustaða. Í slíkri áætlun þarf að vera áhættumat, viðbragðsáætlanir vegna ólíkra áhættuþátta, leiðbeiningar um atvikaskráningu og forvarnaáætlanir.
Vinnuaðstaða kennara og starfsfólks skóla þarf að vera örugg, heilsusamleg og henta eðli hvers starfs. Góður aðbúnaður, öryggi, virkar viðbragðsáætlanir og fyrirtaks innivist draga markvisst úr líkamlegu álagi og stuðla að aukinni einbeitingu, vellíðan og gæðum skólastarfs.
• Valdefla félagsfólk KÍ til sjálfshjálpar með beinni fræðslu, upplýsingagjöf og ráðgjöf um mikilvægi góðrar innivistar, öryggis og aðbúnaðar.
• Fræða um og kynna fyrir félagsfólki KÍ og starfsfólki skrifstofu KÍ þær nýjungar og það efni sem finna má á vef KÍ og gildandi lög og reglugerðir um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti.
• Efla upplýsingaveitu og fræðsluefni á vef og miðlum KÍ og endurskoða og endurnýja það reglulega.
• Taka þátt í og koma á mótun og samstarfi við sérfræðinga og stofnanir um að efla öryggi og styrkja áfallaþol starfsfólks skóla og þar með talið að bregðast við neyðarástandi.
• Bjóða upp á reglulega fræðslu meðal félagsfólks um áhættuþætti í vinnuumhverfi eins og innivist og aðbúnað.
Vinnuumhverfisnefnd KÍ starfar samkvæmt lögum KÍ og samþykktum þings KÍ. Hlutverk nefndarinnar er skilgreint í 32. gr. laga KÍ en þar segir að nefndin skuli:
Vinnuumhverfisnefnd KÍ starfar á hverju kjörtímabili eftir síbreytilegu vinnuumhverfishjóli nefndarinnar. Sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfismálum er starfsmaður nefndarinnar.
Stjórn KÍ fer með ábyrgð á framkvæmd stefnunnar en getur falið vinnuumhverfisnefnd að undirbúa, framkvæma eða hafa yfirumsjón með völdum markmiðum hennar.
Stefnan nær til félagsfólks KÍ.
I Lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum https://www.althingi.is/lagas/156a/1980046.html
II Reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum oft vísað til sem EKKO-reglugerðar https://island.is/reglugerdir/nr/1009-2015
III Finna má niðurstöður rannsóknar KÍ frá 2024 á slóðinni: https://www.ki.is/media/qzyo0hg2/kennarasamband_%C3%ADslands_sk%C3%BDrsla.pdf
IV Heilbrigð vinnustaðamenning: Átt er við þau gildi, venjur og viðhorf sem ríkja í vinnuumhverfinu og starfsfólk tileinkar sér í samskiptum, samvinnu og við lausn mála. Heilbrigð vinnustaðamenning leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks og þess vegna er svo mikilvægt að meta þá þætti í vinnuumhverfinu sem hafa áhrif á menninguna og þar með á líðan starfsfólks.
V Frekari upplýsingar má finna á slóðinni: https://island.is/salfelagslegt-vinnuumhverfi/samskipti#kannadu-ekkingu-ina-a-vinnustadamenningu-og-trausti-taktu-profid
VI EKKO stendur fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi og byggjast skilgreiningar hugtaka á reglugerð 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðilegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
VII Innivist húsnæðis er samsett úr nokkrum þáttum sem hafa bein áhrif á þá sem starfa á vinnustað. Þekktustu þættir innivistar eru loftgæði, hljóðvist og ljósvist en einnig þarf að huga að öryggi, rými, aðbúnaði, aðgengi, efnisvali og tengslum við náttúru. KÍ hefur útbúið gátlista sem tengist innivist, rakaskemmdum og myglu og mælir með að allt félagsfólk kynni sér hann.