Jafn­rétti

Jafnrétti er haft að leiðarljósi í allri starfsemi KÍ og er bein eða óbein mismunun ekki liðin.

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber

sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum
sbirna@ki.is

Jafnrétti er grundvallarréttur alls félagsfólks - Jafnréttisstefna KÍ

„Jafnréttisstefna Kennarasambands Íslands (KÍ) er samþykkt á 9. þingi sambandsins. Stefnan er reist á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna ásamt öðrum lögum sem leggja bann við hvers konar mismununi . Stefna þessi tekur mið af heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun og á einnig rætur í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og mannréttindayfirlýsingum.

Jafnrétti á vinnustað og í félagsstarfi er grundvallarréttur alls félagsfólks KÍ ekki síst þeirra sem starfa í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum KÍ," segir í stefnu KÍ í jafnréttismálum sem var samþykkt á 9. þingi sambandsins 2026.

Lesa Jafnréttisstefnu KÍ

EKKO - einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi

Mat á jafnrétti í skólastarfi og sýnileika þess

Jafnréttisnefnd efnir til samkeppni um jafnréttisverkefni í skólum annað hvert ár

Jafnréttisnefnd KÍ boðaði árið 2025 til samkeppni um jafnréttisverkefni (JAKI) sem notuð hafa verið í kennslu í skólum hér á landi. Samkeppnin náðitil allra skólastiga og gátu jafnréttisverkefnin verið allt frá þemaverkefnum heilla skóla eða árganga til verkefna einstakra kennara fyrir bekki eða afmarkaðan hóp nemenda. Verkefni þurftu að rúmast undir hatti alhliða jafnréttis og grunnþættinum jafnrétti.

Maria Valdeolivas, Anna Kristín Guðjónsdóttir og Angela Árnadóttir báru sigur úr býtum í samkeppni jafnréttisnefndar KÍ um jafnréttisverkefni á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Gagnrýnin hugsun, lýðræðisleg þátttaka, aukin vitund nemenda um jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika voru meðal efnisatriða sem var að vinna í verðlaunaverkefnunum.

Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á níunda þingi KÍ í apríl 2026.

Lesa frétt um verðlaunahafana

Samkeppnin verður næst haldin 2028