Fé­lag stjórn­enda leik­skóla

Félag stjórnenda leikskóla var stofnað þann 30. apríl 2010 og er í dag eitt af sjö aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eru um 450.

Sigurður Sigurjónsson

formaður
sigurdur@ki.is

Hlutverk Félags stjórnenda leikskóla

Hlutverk félagsins er að vinna að bættum kjörum félagsmanna sinna, efla og standa vörð um menntun leikskólakennara og stjórnenda í leikskólum. Enn fremur að stuðla að alhliða framförum í uppeldis- og menntamálum barna, láta sig öll málefni barna varða, gæta hagsmuna leikskóla í hvívetna og að kynna sem best starf leikskóla meðal þjóðarinnar.

EPL­IÐ

Fréttabréf FSL þar sem sögð eru tíðindi af kjaramálum, réttindamálum og félagsstarfi.

Nánar
Lög Félags stjórnenda leikskóla voru samþykkt á aðalfundi FSL 12. maí 2022.
Samráðsnefnd FSL er stjórn félagsins til ráðuneytis um starfsemi félagsins.
Félagið heldur aðalfundi á fjögurra ára fresti. Næsti aðalfundur verður árið 2030.