Lög Félags stjórnenda leikskóla voru samþykkt á aðalfundi FSL 12. maí 2022.

Félagið heitir Félag stjórnenda leikskóla, skammstafað FSL, og á aðild að Kennarasambandi Íslands. Félagssvæðið er allt landið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
Hlutverk félagsins er að:
Aðild að félaginu eiga:
Í samráðsnefnd skulu vera einn aðalmaður fyrir hverja 100 félagsmenn. Einn varamaður skal vera á hverju svæði.
Fulltrúar í samráðsnefnd eru kosnir á hverju svæði fyrir sig, mánuði fyrir aðalfund og sjá framboðsnefnd og kjörstjórn FSL um það kjör.
Landið skiptist í 9 svæði, sem eru:
Aðalmenn í samráðsnefnd eru tengiliðir við stjórn og jafnframt trúnaðarmenn. Félagsmenn geta valið sér þann trúnaðarmann úr samráðsnefnd sem þeir kjósa. Aðalmaður í samráðsnefnd skal hafa samvinnu við svæðafélag FL á sínu svæði eftir því sem við á. Aðalmaður samráðsnefndar skal funda með félagsmönnum á sínu svæði að minnsta kosti einu sinni á ári. Óski félagsmenn á svæðinu eftir því að halda fundi eða námskeið getur svæðið sótt um styrk til stjórnar FSL til framkvæmdarinnar.
Aðalfund félagsins skal halda fjórða hvert ár. Ekki skulu líða meira en 6 mánuðir milli aðalfundar félags og þings KÍ.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins, samanber þó 20. gr.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagsmenn. Stjórn, varastjórn, samninganefnd, samráðsnefnd, formenn fastanefnda FSL og félagsmenn sem eru formenn fastanefnda KÍ ber að sitja aðalfund.
Allir aðalfundarmenn hafa málfrelsi, tillögu og atkvæðisrétt.
Til aðalfundar skal boða með a.m.k. 5 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á aðalfundi skulu berast stjórn, eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund. Aðalfundargögn skulu send út til félagsmanna eða birt á heimasíðu FSL með minnst 3 vikna fyrirvara.
Formaður eða stjórn getur boðað til aukaaðalfundar um sérstök mikilvæg málefni og gildir þá ekki ákvæði um boðun með 5 vikna fyrirvara.
Stjórn félagsins skipuleggur og ber ábyrgð á aðalfundi.
Á dagskrá aðalfundar skulu a.m.k. vera eftirtaldir dagskrárliðir:
Aðalfundur er lögmætur ef rétt er til hans boðað. Einfaldur meirihluti aðalfundar ræður úrslitum mála, sbr. þó 21. gr. Fundargerð aðalfundar skal birt á heimasíðu félagsins eigi síðar en fjórum vikum frá lokum fundarins.
Þau ár sem ekki er aðalfundur skal stjórn félagsins boða til ársfundar, þar sem m.a. er fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar þess eru lagðir fram. Ársfund skal boða með a.m.k. 4 vikna fyrirvara.
Rétt til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn, samninganefnd og samráðsnefnd. Stjórn félagsins hefur umboð til að kalla til fleiri aðila ef þurfa þykir.
Stjórn félagsins getur boðað til almennra félagsfunda. Skylt er að boða til almenns fundar ef hið minnsta 10% félagsmanna krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
Stjórn félagsins skipa fimm menn og þrír til vara, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Kjörtímabil stjórnar er milli aðalfunda.
Formaður skal kjörinn sérstaklega. Einnig skal kjósa fjóra stjórnarmenn og þrjá til vara í allsherjar atkvæðagreiðslu eigi síðar en sex vikum fyrir aðalfund. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta fundi nýrrar stjórnar og ákveður hver í stjórn er formaður skólamálanefndar FL. Stjórnin heldur stjórnarfundi svo oft sem þurfa þykir.
Heimilt er stjórn að ráða starfsmenn til að annast störf fyrir félagið.
Formaður boðar og stýrir stjórnarfundi.
Stjórnarfund skal boða ef tveir stjórnarmenn óska og skal hann haldinn innan viku. Stjórnarfundur er ályktunarfær ef meirihluti stjórnar sækir fund.
Stjórn skal eiga samvinnu við stjórn FL. Halda skal sameiginlega stjórnarfundi félaganna eigi sjaldnar en tvisvar sinnum á ári.
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Stjórn ber ábyrgð á starfsemi félagsins og hefur eftirlit með því að lögum þess, samþykktum og samningum sé framfylgt og er í fyrirsvari fyrir það út á við. Stjórn ber ábyrgð á samstarfi við önnur félög kennara og stjórnenda og samvinnu við faghópa innan eða utan KÍ sem vinna að málefnum leikskóla. Stjórn er jafnframt skólamálanefnd FL.
Formaður hefur yfirumsjón með rekstri félagsins. Varaformaður er staðgengill hans.
Stjórn félagsins skal boða til fundar með samráðsnefnd eins oft og þurfa þykir en að lágmarki tvisvar á ári.
Samráðsnefnd er stjórn til ráðuneytis um starfsemi félagsins, m.a. við undirbúning aðalfunda og ársfunda. Stjórn er heimilt að boða aðra til samráðsfundar eftir þörfum hverju sinni.
Kjörstjórn félagsins skal skipuð 3 mönnum og 2 til vara kjörnum á aðalfundi. Hún stýrir stjórnarkjöri og öðrum kosningum á aðalfundum auk annarra kosninga sem ekki heyra undir kjörstjórn Kennarasambands Íslands. Aðalfundur setur reglur um störf kjörstjórnar og framkvæmd atkvæðagreiðslu.
Ritari félagsins ritar fundargerð sem samþykkt er á stjórnarfundi og birt á heimasíðu.
14. gr. FJÁRREIÐUR OG BÓKHALD
Þing Kennarasambands Íslands ákvarðar skiptingu og upphæð félagsgjalda. Stjórn félagsins hefur umsjón með fjárreiðum þess og bókfærslu og leggur fram endurskoðaða reikninga á aðalfundi. Auk þess skal stjórn á ársfundi leggja fram yfirlit yfir stöðu félagsins.
Formaður félagsins situr í stjórn Kennarasambands Íslands en varaformaður er staðgengill hans.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa 3 fulltrúa og 2 til vara, sem ásamt stjórn félagsins mynda samninganefnd. Atkvæðamagn ræður því hverjir hljóta kjör sem aðalmenn og hverjir verða varamenn. Formaður FSL er formaður samninganefndar og varaformaður staðgengill hans. Að öðru leyti skiptir samninganefnd með sér verkum. Aðalfundur setur samninganefnd starfsreglur.
Hlutverk samninganefndar er m.a. að:
Stjórn FSL er jafnframt skólamálanefnd FSL. Skólamálanefnd skiptir með sér verkum og setur. Stjórn FSL setur nefndinni starfsreglur. Skólamálanefnd skal eiga samvinnu við skólamálanefnd FL.
Hlutverk skólamálanefndar er m.a. að:
Vísindasjóður FL og FSL tryggir fjárhagslegan grundvöll sí- og endurmenntunar fyrir leikskólakennara í tengslum við störf þeirra. Vísindasjóður leikskólakennara starfar í þremur deildum eftir samþykkt sem sjóðsstjórn setur.
Stjórn FSL í samvinnu við FL og KÍ ber ábyrgð á að gera þjónustusamning við sjóðinn vegna umsýslu.
Stjórn FSL skipar einn fulltrúa og einn til vara til að sitja í stjórn Vísindasjóðs FL og FSL.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa 3 manna framboðsnefnd og 2 til vara. Atkvæðamagn ræður því hverjir eru kjörnir aðalmenn og hverjir varamenn. Hlutverk nefndarinnar er að taka á móti framboðum og kynna frambjóðendur til stjórnar, skoðunarmanna reikninga, fulltrúa í samninganefnd og fulltrúa til annarra trúnaðarstarfa sem aðalfundur kýs.
Við uppstillingu á vegum félagsins skal tryggja jafnræði. Framboðsnefnd starfar eftir reglum sem aðalfundur setur.
Um kjarasamninga og boðun verkfalls skal fara fram leynileg allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda. Kjörskrá skal miðuð við gildandi félagatal. Þeir sem sannanlega greiða félagsgjald en eru ekki komnir á félagaskrá eiga rétt á að taka þátt í allsherjaratkvæðagreiðslu hverju sinni.
Stjórn félagsins getur efnt til allsherjaratkvæðagreiðslu um önnur mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir aðalfund.
Einnig er skylt að hafa allsherjaratkvæðagreiðslu ef a.m.k. 1/10 hluti félagsmanna æskir þess.
Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins enda hafi breytingarnar verið kynntar í fundarboði. Tillögur til lagabreytinga þurfa að hafa borist stjórn skriflega 4 vikum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar félagsmönnum eigi síðar en 3 vikum fyrir aðalfund. Til þess að breyting nái fram að ganga verður hún að hljóta samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða. Breytingar á lögunum öðlast gildi þegar stjórn Kennarasambands Íslands hefur staðfest þær.
Nú kemur fram tillaga um það að félaginu skuli slitið og skal hún þá sæta sömu meðferð sem tillaga um lagabreytingar, sbr. 21. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar stjórn KÍ hefur staðfest þau.
Þannig samþykkt á fjórða aðalfundi Félags stjórnenda leikskóla 12. maí 2022.