
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Félagsar í FT eru tæplega 500 og starfa í um 80 tónlistarskólum um land allt.
Skrifstofa FT

Fjölmargir félagar í FT leggja lóð á vogarskálarnar og taka þátt í starfi félagsins.
FT hefur á að skipa þremur svæðadeildum sem vinna að félagsstarfi, hafa samráð milli svæða og efla tónlistarfræðslu.
Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga er formlegur vettvangur samskipta á gildistíma kjarasamnings.
Stjórn sjóðsins er skipuð fjórum fulltrúum, tveimur frá FT og tveimur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúi FT í stjórn e...
FT fagnaði fjörutíu ára afmæli árið 2022 og hélt af því tilefni viðamikla ráðstefnu undir yfirskriftinni Tónlist er fyrir alla

Hlutverk félagsins
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) var stofnað 21. nóvember 1982 og er í dag eitt af sjö aðildarfélögum KÍ. Félagsfólk er um 500 og starfar í um 80 tónlistarskólum um land allt.
Aðild að félaginu eiga þeir einstaklingar sem:
- starfa við kennslu eða stjórnun í tónlistarskólum/listaskólum,
- vinna við stofnanir og fyrirtæki sem sinna eða tengjast tónlistarkennslu og fræðslumálum,
- sinna tengdum störfum í sinni faggrein,
- og eru félagsmenn í KÍ og FT ákvarðar launakjör eða semur fyrir skv. lögum nr. 94/1986, lögum nr. 80/1938, eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda.
Aðild er óháð starfshlutfalli og eiga stundakennarar rétt á félagsaðild.
Tónlistarnemar 16 ára og eldri geta sótt um nemaaðild að félaginu. Nemaaðild gefur rétt til þátttöku í félagsstarfi FT, meðal annars fræðslu- og ráðstefnustarfi, og veitir málfrelsi og tillögurétt á félagsfundum. Nemaaðild er án félagsgjalds.