Sjúkra­sjóð­ur

Hlutverk Sjúkrasjóðs Kennarasamband Íslands er að veita sjóðfélögum fjárhagsaðstoð vegna veikinda og slysa og einnig styðja við endurhæfingu og forvarnir.

Hvaða styrkir eru í boði?

Reikningar og kvittanir

  • Með umsókn skulu fylgja nauðsynleg gögn eftir því sem við á. Gögn, þar á meðal reikningar, skulu vera rafræn eða skönnuð frumrit. Reikningar skulu vera í löglegu formi með nafni umsækjanda, auk þess sem nafn og kennitala seljanda þarf að koma fram, ásamt upplýsingum um þá þjónustu eða vöru sem keypt er. Reikningar skulu sannanlega hafa verið greiddir.
  • Sjóðsstjórn getur jafnan farið fram á að að frumrit reiknings verði lagt fram og/eða að lögð verði fram nánari gögn til stuðnings umsókn.
  • Kvittanir / reikningar mega ekki vera eldri en 12 mánaða. Vinsamlegast athugið að umsóknir eru afgreiddar samkvæmt þeim sem reglum eru í gildi þegar umsókn berst til sjúkrasjóðs. 
  • Staðgreiðsla skatta er tekin af öllum styrkjum sjúkrasjóðs, samkvæmt skattprósentu 31.49%.
  • Ekki er þó tekinn skattur af útfararstyrkjum. Allar umsóknir um styrki úr Sjúkrasjóði KÍ fara í gegnum Mínar síður. Þar geta félagsmenn haldið utan um öll sín mál á einum stað.