Fé­lag stjórn­enda í framhalds­skólum­

FS var stofnað árið 1999. Félagsmenn eru um 90 talsins.

Anton Már Gylfason

formaður
anton@ki.is
Fjöldi félaga Fs leggur hönd á plóg í félagsstarfinu.
Lögin voru síðast uppfærð á aðalfundi FS í mai 2026 – og síðan staðfest af stjórn KÍ 16. júní 2026

Hlutverk FS

Félag stjórnenda í framhaldsskólum var stofnað árið 1999 og er í dag eitt af sjö aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eru um 90, en rétt til að gerast félagar hafa aðstoðarskólameistarar, konrektorar, staðgenglar skólameistara/rektors, áfangastjórar og aðrir sem eru í a.m.k. hálfri stöðu sem stjórnendur í framhaldsskólum.

Hlutverk félagsins er að vera málsvari félagsmanna, gera kjarasamninga fyrir félagið, halda fundi og námskeið, efla faglega umræðu meðal félagsmanna og sjá um kjör fulltrúa á þing Kennarasambands Íslands.

Fundargerðir aðalfunda

Gráa Epl­ið

Rafrænt fréttabréf FS sem berst félagsfólki í tölvupósti. Gráa Eplið hóf göngu sína árið 2024.

Nánar