Verkefni um jafnrétti verðlaunuð á þingi KÍ

Fréttir|21. apríl 2026

Gagnrýnin hugsun, lýðræðisleg þátttaka, aukin vitund nemenda um jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika. Þetta er meðal efnisatriða sem er finna í verðlaunaverkefnum um jafnrétti, sem jafnréttisnefnd KÍ stendur að.

Maria Valdeolivas, Anna Kristín Guðjónsdóttir og Angela Árnadóttir báru sigur úr býtum í samkeppni jafnréttisnefndar KÍ um jafnréttisverkefni á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastigi. 

Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á níunda þingi KÍ sem fór fram í liðinni viku. 

Tildrögin eru þau að jafnréttisnefnd KÍ boðaði til samkeppninnar í lok nóvember á síðasta ári. Fram kom í tilkynningu nefndarinnar að samkeppnin næði til allra skólastiga og gæti falið í sér þemaverkefni heilla skóla eða árganga til verkefna einstakra kennara fyrir bekki að jafnvel afmarkaðan hóp nemenda. „Verkefnin þurfa að rúmast undir hatti alhliða jafnréttis og grunnþættinum jafnrétti," sagði í kynningu á keppninni. 

Þátttaka í keppninni fór fram úr björtustu vonum og bárust mörg fagleg og góð verkefni. Dómnefnd valdi svo þrjú verkefni sem þóttu skara fram úr. 

Aðgerðasinnar í jafnréttismálum – Angela Árnadóttir

Angela Árnadóttir, myndlistarkona og kennari, hlaut verðlaun, á framhaldsskólastigi, fyrir verkefnið Nemendur sem aðgerðasinnar í jafnréttismálum – nemendamiðuð listrannsókn. 

Umsögn dómnefndar: Verkefnið Nemendur sem aðgerðarsinnar í jafnréttismálum skar sig sérstaklega úr að mati dómnefndar fyrir metnaðarfulla og samfélagslega tengda nálgun. Í verkefninu eru nemendur hvattir til að skoða jafnréttismál gagnrýnið og taka virkan þátt í að móta og miðla eigin afstöðu. Með því að tengja fræðilega umræðu við raunverulega þátttöku og aðgerðir í samfélaginu fá nemendur tækifæri til að þróa bæði þekkingu og borgaralega ábyrgð.

Verkefnið eflir þannig gagnrýna hugsun, samvinnu og lýðræðislega þátttöku en á sama tíma er það skapandi, lærdómsríkt og frumlegt.

Dómnefnd telur verkefnið sterkt dæmi um hvernig skólastarf getur hvatt ungt fólk til virkrar þátttöku í baráttunni fyrir jafnrétti.

 

Fræðslutorg um kynjafræði – Anna Kristín Guðjónsdóttir

Anna Kristín Guðjónsdóttir, kennari í Hvolsskóla, hlaut verðlaun, á grunnskólastigi, fyrir verkefnið Fræðslutorg Hvolsskóla –kynjafræði. 

Umsögn dómnefndar: Verkefnið Fræðslutorg Hvolsskóla – kynjafræði skapar lifandi vettvang þar sem nemendur kynnast jafnréttismálum á fjölbreyttan og gagnvirkan hátt. Með því að setja upp fræðslustöðvar eða „torg“ þar sem unnið er með ólík viðfangsefni tengd kynjafræði og jafnrétti fá nemendur tækifæri til að nálgast efnið frá mismunandi sjónarhornum.

Verkefnið er hægt að útfæra á ýmsa vegu og þannig að nemendur og ekki síður þátttakendur geti tekið virkan þátt í lokaafurðinni.

Verkefnið einkennist af skýrri uppbyggingu, virkri þátttöku nemenda og greinargóðum leiðbeiningum þannig að auðvelt væri fyrir aðra skóla að taka upp sambærilega útgáfu af verkefninu.

Dómnefnd telur að verkefnið sameini fræðslu og þátttöku á áhrifaríkan hátt og stuðli að aukinni vitund nemenda um jafnrétti, fjölbreytileika og samfélagsleg réttindi sem dreifir sér út í nærumhverfið.

 

Rými fyrir samtal, upplifun og reynslu – María Valdeolivas

María Valdeolivas, kennari í Reynisholti, hlaut verðlaun fyrir verkefni, á leikskólastigi, sem kallast Hvað sérðu?

Umsögn dómnefndar: Verkefnið Hvað sérðu? nálgast jafnrétti og fjölbreytileika á skapandi og aðgengilegan hátt fyrir yngstu nemendurna. Með því að hvetja börn til að skoða myndir og ræða hvað þau sjá og hvernig þau túlka það, opnast rými fyrir samtal um mismunandi sjónarhorn, upplifun og reynslu.

Verkefnið styður þannig við virðingu fyrir fjölbreytileika og eflir félagsfærni og gagnkvæman skilning barna. Verkefnið gefur góða möguleika á að þróa áfram og útvíkka, þannig væri hægt að vinna ítarlegar með jafnréttishugtök, kynhlutverk og staðalímyndir.

Dómnefnd telur verkefnið einfalt í framkvæmd en jafnframt hugmyndaríkt og vel til þess fallið að hvetja börn til að velta fyrir sér hvernig við sjáum og skiljum heiminn á ólíkan hátt.

 

Kennarasambandið óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju með viðurkenninguna.