Kjarastefna KÍ

Kjarastefna Kennarasambands Íslands fyrir árin 2026 til 2030 var samþykkt á níuna þingi KÍ 2026.

9. þing Kennarasambands Íslands leggur áherslu á að íslenskt skólakerfi byggist á fagmennsku, trausti og sterkri stöðu þeirra sérfræðinga sem starfa innan þess.

Félagsfólk KÍ gegnir lykilhlutverki í því að móta framtíð samfélagsins í starfi sínu með börnum og ungmennum.

Kjarastefna KÍ fyrir tímabilið 2026–2030 byggir á þeirri sýn að menntakerfið geti aðeins þróast til framtíðar ef starf þeirra sem bera ábyrgð á menntun barna nýtur virðingar, góðra starfsskilyrða og samkeppnishæfra kjara.

KÍ leggur sérstaka áherslu á að laun og starfskjör félagsfólks KÍ byggi á mati á ábyrgð, menntun, fagþekkingu og samfélagslegu mikilvægi starfsins.


Laun og starfskjör

Kennarasamband Íslands leggur áherslu á:

  • Að laun og önnur starfskjör félagsfólks KÍ standist ávallt samanburð við kjör annarra sérfræðinga og stjórnenda á vinnumarkaði.
  • Að ábyrgð, menntun, reynsla og fagleg forysta í skólastarfi endurspeglist með skýrum hætti í launakjörum.
  • Að kerfisbreytingar og aukið álag vegna þeirra verði metið og komið til móts við í kjarasamningum.


Starfsskilyrði

Kennarasamband Íslands leggur áherslu á:

  • Að í kjarasamningum verði tryggður nægur tími til undirbúnings og úrvinnslu kennslu.
  • Að vinnuaðstaða í skólum uppfylli þær kröfur sem starfið gerir á hverjum tíma.
  • Að skólahúsnæði uppfylli ýtrustu kröfur um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi.
  • Mikilvægi vinnuumhverfismála.
  • Að grunnviðmið vinnuviku alls félagsfólks verði 36 klukkustundir að jafnaði og verkefnum fækkað hlutfallslega.
  • Að gerðar verði skýrar starfslýsingar.
  • Að hópastærðir endurspegli aldur, aðstæður og samsetningu nemendahópa.
  • Að nemendafjöldi á hvert 100% stöðugildi náms- og starfsráðgjafa verði að hámarki 250. • Að auka rétt og tækifæri til starfsþróunar
  • Að tími til markvissrar starfs- og skólaþróunar verði tryggður í skipulagi skólastarfs.
  • Að efla starfsendurhæfingu og auðvelda endurkomu til starfa

Kennarasamband Íslands leggur áherslu að laun og önnur starfskjör félagsfólks KÍ standist ávallt samanburð við kjör annarra sérfræðinga og stjórnenda á vinnumarkaði.

Kjarasamningsumhverfi

Kennarasamband Íslands leggur áherslu á:

  • Að greiðslur úr Sjúkrasjóði og Vinnudeilusjóði til félagsfólks verði ekki skattlagðar.
  • Að kjarasamningar taki gildi frá þeim tíma sem fyrri samningur rann út.
  • Að kaupmáttur launa skerðist ekki á samningstíma.
  • Að öllum launagreiðendum verði skylt að skila fullnægjandi upplýsingum um launagreiðslur til stéttarfélaga.
  • Að skaðabótaábyrgð vinnuveitenda vegna atvinnutengdra sjúkdóma verði bætt.
  • Að kjararannsóknir á vinnumarkaði verði efldar til að auðvelda launasamanburð.
  • Að kjararannsóknir verði efldar til að auðvelda alþjóðlegan samanburð.
  • Að kjarasamningar séu samningar um lágmarkskjör – heimilt sé að semja um betri kjör en ekki lakari.
  • Að kennsluferill, stjórnun, reynsla og menntun verði metin til launa við tilfærslu milli skólagerða eða skólastiga.
  • Að stefnt verði að fjölgun starfsreynsluflokka.


Réttindamál

Kennarasamband Íslands leggur áherslu á:

  • Að réttindi félagsfólks verði virt óháð rekstrarformi skóla eða skólagerð.
  • Að öll störf við menntastofnanir séu auglýst með viðeigandi hætti.
  • Að trúnaðarmenn hafi tíma til að sinna störfum sínum.
  • Að bætt verði réttindi vegna veikinda barna, fjölskyldumeðlima og nákominna.
  • Að bætt verði réttindi vegna brýnna fjölskylduaðstæðna, s.s. andláts.
  • Að fæðingarorlof verði lengt og greidd verði full laun í fæðingarorlofi.
  • Að félagsfólk njóti bestu mögulegu lífeyrisréttinda.
  • Að laun á almennum og opinberum vinnumarkaði verði jöfnuð.
  • Að launajafnrétti kynjanna verði tryggt.
  • Að unnið verði gegn kerfisbundnum launamun kvennastétta.


Framtíðarsýn

Félagsfólk KÍ er meðal mikilvægustu sérfræðinga samfélagsins. Starf þeirra mótar menntun, lýðræði og framtíð þjóðarinnar.

Kennarasamband Íslands leggur því áherslu á að kjarasamningar og starfsskilyrði í skólakerfinu styðji við öflugt menntakerfi, sjálfbær störf félagsfólks KÍ, aukna fagmennsku og sterka stöðu menntunar í íslensku samfélagi.


Fjárfesting í kennurum er fjárfesting í framtíðinni.

Samþykkt með öllum greiddum.atkvæðum á 9. þingi KÍ 2026.

Kjara­stefna

Prenta út eða hlaða niður Kjarastefnu KÍ 2022-2026