Níunda þing KÍ, haldið í apríl 2026, leggur áherslu á að Kennarasambandið sé virkur þátttakandi í erlendu samstarfi.

Markmiðið með þátttöku í erlendu samstarfi er að fylgjast með því helsta sem er að gerast í kjara-, skóla og menntamálum og málefnum kennara og skólastjórnenda annars staðar í heiminum og til að miðla til annarra því sem markvert er á Íslandi.
Þau sem taka þátt í erlendu samstarfi fyrir hönd KÍ miðli því áfram innan sambandsins eftir því sem við á hverju sinni.

Mikilvægt er að tengja starfið bæði við kjaramála- og skólamálavettvang félaganna. Þátttaka félaganna er bundin fjárheimildum í fjárhagsáætlun hvers aðildarfélags KÍ. Félag stjórnenda leikskóla (FSL) , Skólastjórafélag Íslands (SÍ) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) taka þátt í samstarfi innan NLS með þátttöku í LEDARFORUM sem NLS gengst fyrir árlega. Þátttaka félaganna er bundin fjárheimildum í fjárhagsáætlun hvers aðildarfélags KÍ.
KÍ styður við þátttöku fulltrúa frá stjórnum kennaranemafélaga á vettvangi NLS – Studerandeforum í samræmi við mótaða stefnu KÍ um samstarf við kennaranema í háskólum landsins. KÍ tekur þátt í stýrihópi norrænu kennarasamtakanna um menntarannsóknir á Norðurlöndum á vettvangi NLS, Utredningsnätverket. Á þeim vettvangi hefur KÍ lagt til samstarf við kennaradeildir íslensku háskólanna sem skipulagt verður á kjörtímabilinu.
NTI-samstarfsnetið (Nordic Teacher Induction) hefur það að markmiði sínu að allir nýliðar í starfi fái starfstengda leiðsögn. Samstarfsaðilar eru Danmörk, Finnland, Færeyjar, Ísland, Noregur, Svíþjóð og Eistland. Hvert land á einn fulltrúa frá rannsakendum sem kenna kennaranemum auk eins fulltrúa frá kennarasambandi hvers lands. Lögð er áhersla á að sterk tenging sé á milli kennaramenntunar og þess að hefja störf á vettvangi og að starfstengd leiðsögn bjóðist öllum nýliðum. Samstarfsnetið er rammað inn af kenningu sem kallast Ecologies of Practice en samkvæmt henni er unnið að því að efla faglega starfsþróun með því að byggja á reynslu hvers lands sem tekur þátt.

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) tekur þátt í erlendu samstarfi á vettvangi Evrópusamtaka tónlistarskóla og á aðild að samtökunum - European Music School Union, EMU. FT tekur þátt á árlegum aðalfundum og ráðstefnum/málþingum samtakanna.
Evrópska tónlistar- og listaskólaráðstefnan, samstarfsverkefni EMU, Conference of Austrian Music School Associations, KOMU, og Musikschulen der Stadt Wien, er leiðandi vettvangur á alþjóðavísu fyrir rannsakendur og fræðafólk á sviði tónlistar- og listaskóla, sem og kennara, stjórnendur, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila sem koma að þróun tónlistar- og listaskóla. FT tekur eftir atvikum þátt í rannsóknarráðstefnunum og nýtir afurðir þeirra sem gefnar eru út í bókarformi.
FT er þátttakandi í norrænu samstarfi á vettvangi Nordisk Musik og Kulturskole Union, NMKU, sem er jafnframt svæðisdeild innan EMU. FT á fulltrúa í stjórn samtakanna og skipta löndin með sér að fara með formennsku sem fylgir formennsku landanna í Norrænu ráðherranefndinni. Stjórn NMKU fundar nokkrum sinnum á ári.
EMU er aðili að Evrópska tónlistarráðinu, European Music Council, EMC, og á fulltrúa í stjórn tónlistarráðsins. Í gegnum EMC er EMU jafnframt aðili að International Music Council, IMC. Í gegnum aðild að EMU fylgist FT með starfi tónlistarráðanna og tekur eftir atvikum þátt í ráðstefnum eða málþingum. International Society for Music Education (ISME)
Alþjóðleg samtök sem styðja við og efla tónlistarmenntun um allan heim. FT á aðild að samtökunum. Þátttaka FT er í samræmi við fjárhagsáætlun og ákvarðanir stjórnar hverju sinni.
Samþykkt samhljóða á 9. Samþykkt samhljóða á níunda þingi KÍ 2026.