Gervigreindarstefna

Níunda þing Kennarasambands Íslands, sem fór fram í apríl 2026, setti sér í fyrsta skipti stefnu um gervigreind í skólastarfi. Stefnan gildir til 2030.

Stefna Kennarasambands Íslands um gervigreind í skólum

Kennarasamband Íslands (KÍ) álítur að gervigreind sé öflugt verkfæri sem geti styrkt nám og kennslu. Til að svo megi verða eiga kennarar að leiða þróun, innleiðingu og hagnýtingu hennar. KÍ gerir skýra kröfu um að komið verði á fót skipulögðu samstarfi milli stjórnvalda og KÍ um alla innleiðingu gervigreindar. Menntun er almannagæði sem tæknin á að þjóna.

Þessi stefna nær til alls félagsfólks KÍ á öllum skólastigum og -gerðum.


Helstu áhersluatriði

Faglegt sjálfræði kennara KÍ leggur mikla áherslu á að það er fagfólkið innan skólanna sem ákveður hvort, hvenær og hvernig gervigreind er notuð í skólastarfi. Kennarar byggja kennslu sína á samskiptum við nemendur, kennslufræðilegri nálgun og faglegri þekkingu þar sem tækni er verkfæri en ekki útgangspunktur eða markmið í sjálfu sér. Þannig eru kennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur skólanna lykilaðilar bæði í stefnumótun og framkvæmd og þurfa raunverulegt umboð og traust til að móta skólakerfið.


Starfsþróun og þjálfun

Félagsfólk KÍ þarf markvissa og fjölbreytta starfsþróun um notkun gervigreindar. Hún skal fara fram á vinnutíma og á kostnað vinnuveitanda. Stafræn þróun eða umbreyting í skólum getur ekki byggt á því að fagfólkið sé látið takast á við þessa áskorun á eigin vegum. Því skipta stuðningur stjórnvalda, skipulagt frumkvöðlastarf og markviss uppbygging lærdómssamfélaga í öllum skólum verulegu máli.


Vinnuálag og kjaramál

Gervigreind á að efla og auka gæði í störfum félagsfólks. Árangursrík notkun gervigreindar í skólastarfi krefst mikillar vinnu og ætti sá tími að rúmast innan ársvinnuskyldu. Ef innleiðing nýrra kerfa eða tækni leiðir til aukins vinnuálags verður að tryggja réttmæt laun fyrir það.

Þess verður einnig að gæta að innleiðing gervigreindar má ekki verða bakdyraleið að niðurskurði. Gervigreindartækni kemur aldrei í stað kennara.


Persónuvernd og gagnavernd

Ein stærsta siðferðilega og vinnuverndarlega áskorunin samfara innleiðingu gervigreindar í skólastarfi er söfnun og meðferð margvíslegra upplýsinga. Kennarasamband Íslands leggur því mikla áherslu á að gögn kennara og nemenda og gögn um kennara og nemendur verði að njóta fullrar verndar og verði ekki notuð til vöktunar eða eftirlits. Skýrar reglur um gagnasöfnun, gagnavinnslu og vistun verða að gilda í öllum skólum.

Við höfum byggt íslenskt skólakerfi upp á trausti – ekki eftirliti – og eigum að halda því áfram.

Þess verður einnig að gæta að innleiðing gervigreindar má ekki verða bakdyraleið að niðurskurði. Gervigreindartækni kemur aldrei í stað kennara.

Íslensk tunga og menning

Notkun gervigreindar í íslenskum skólum á að styðja við íslenskt tungumál og menningu. KÍ gerir þá kröfu að stjórnvöld tryggi fjármagn til þróunar íslenskra gervigreindarverkfæra og máltækni. Samráð og samvinna KÍ skal vera fullgildur þátttakandi í öllum ákvörðunum um gervigreind í menntakerfinu – frá stefnumótun til innleiðingar og mats á árangri. Kennarar skulu vera hönnuðir og meðhöfundar tæknilausna en ekki bara notendur þeirra.

Íslensk menntayfirvöld hafa þegar skuldbundið sig þessari sýn: kennarar skulu hafa faglegt sjálfræði yfir notkun tækni og taka virkan þátt í hönnun, prófun og mati á tæknilausnum.


Gervigreind, inngilding og jafnrétti

KÍ viðurkennir og fagnar möguleikum gervigreindar til þess að mæta námsþörfum nemenda á fjölbreyttan hátt og stuðla þannig að inngildandi skólastarfi og auknu jafnræði nemenda. Þess verður þó að gæta að þessi mállíkön endurspegla menningarlega bjaga (e. bias) og fordóma og geta þannig magnað upp ríkjandi mismunun.

Mismunandi aðgengi að gervigreind getur einnig breikkað hina stafrænu gjá með ýmsu móti. Því verður að tryggja að fagfólk á öllum skólastigum og -gerðum hafi jafnan aðgang að gervigreindartækni.


Eftirfylgni og endurskoðun

Kennarasamband Íslands mun fylgja þessari stefnu eftir í kjarasamningum, í skipulögðu samráði við stjórnvöld og í starfi allra aðildarfélaga.

Stefnan verður endurskoðuð reglulega í takt við þróun tækninnar og reynslu félagsfólks.

Samþykkt á 9. Þingi KÍ í apríl 2026

Stefna KÍ um gervi­greind

Hægt er að hlaða stefnunni niður ásamt greinargerð sem var lögð fyrir þing KÍ

Nánar