Hvernig er best að bera sig að ef veikindi koma upp? Hvað réttindi gilda ef veikindi eru langvinn?

Í veikindum eru allir dagar taldir (almanaksdagar) en ekki einungis virkir dagar. Horft er til fjölda veikindadaga síðustu 12 mánuði og sá fjöldi dreginn frá rétti starfsmanns.
Ávinnsla veikindaréttar miðar við starfsaldur hjá núverandi launagreiðanda auk fyrri starfsaldurs hjá stofnunum ríkis, sveitarfélaga og/eða sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé.
| Starfsaldur | Fjöldi veikindadaga |
|---|---|
0 til 3 mánuðir í starfi | 14 |
Næstu 3 mánuðir í starfi | 35 |
Eftir 6 mánuði í starfi | 119 |
Eftir 1 ár í starfi | 133 |
Eftir 7 ár í starfi | 175 |
Eftir 12 ára | 273 |
Eftir 18 ára starf | 360 |