Uppsagnir

Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðamót.

Starfsfólk er almennt ráðið til starfa með skriflegum ráðningarsamningum sem eru ótímabundnir en með gagnkvæmum rétti til uppsagnarfrests.

Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir að loknum reynslutíma en einn mánuður á reynslutíma.

Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðamót.

Mismunandi reglur eftir lengd starfstíma

StarfstímiUppsagnarfrestur
Ótímabundin ráðning / fastráðning
3 mánuðir
Eftir 10 ára samfellt starf
Starfsmaður orðinn 55 ára
4 mánuðir
Starfsmaður orðinn 60 ára
5 mánuðir
Starfsmaður orðinn 63 ára
6 mánuðir
  • Starfsmaður á rétt á lengri uppsagnarfresti ef honum er sagt upp störfum eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hafi hann náð tilteknum aldri. Starfsmaður getur ávallt sagt upp starfi sínu með 3ja mánaða fyrirvara.
  • Tímabundin ráðning fellur úr gildi við lok samningstíma án sérstakrar uppsagnar. Mikilvægt er að tilkynna starfsmanni í tíma að ekki standi til að framlengja tímabundna ráðningu.
  • Um uppsagnarfrest félaga í Félags leikskólakennara, sem starfa utan Reykjavíkur, gildir eftirfarandi: Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er þrír mánuðir og miðast við mánaðamót. Á fyrstu þremur mánuðunum, sem er reynslutími, er uppsagnarfrestur þó einn mánuður. 

Helstu reglur sem gilda um uppsagnir