Allt launafólk þarf að hafa aðild að lífeyrrissjóði. Flestir félagar í KÍ eru í LSR eða Brú.

Í öllum kjarasamningum KÍ er ákvæði um að launagreiðendur greiði 2% af launum starfsmanna sinna sem mótframlag við viðbótarlífeyrissparnað þeirra, enda sé framlag launamanns a.m.k. 2%. Starfsmaður getur valið sér hvort hann geymir viðbótarlífeyrissparnað hjá lífeyrissjóðum, bönkum, sparisjóðum, verðbréfafyrirtækjum eða líftryggingafélögum.
Mikilvægt er að kynna sér vel hvort um einhvern kostnað er að ræða í upphafi viðbótarlífeyrissparnaðar eða ekki. Séreignardeild LSR hefur engan eða lægri kostnað í upphafi sparnaðar en gengur og gerist annars staðar.