Samstarfsnefnd

Nefndin hefur það hlutverk að fjalla um framkvæmd og túlkun kjarasamninga.

Hvað gerir samstarfsnefnd?

Hlutverk samstarfsnefndar Samstarfsnefnd er formlegur vettvangur samskipta samningsaðila á gildistíma kjarasamnings. Nefndin hefur það hlutverk að fjalla um framkvæmd og túlkun kjarasamnings, úrskurða í ágreiningsmálum og vinna úr bókunum með kjarasamningi milli kjaraviðræðna. Starf samstarfsnefndar liggur að jafnaði niðri meðan kjaraviðræður standa yfir.

Fundargerðir og bókanir FG og SNS

Um Samstarfsfnefnd úr kjarasamningi frá 2024

11.1

SAMSTARFSNEFND

11.1.1

Hlutverk samstarfsnefndar Samstarfsnefnd er formlegur vettvangur samskipta samningsaðila á gildistíma kjarasamnings. Nefndin hefur það hlutverk að fjalla um framkvæmd og túlkun kjarasamnings, úrskurða í ágreiningsmálum og vinna úr bókunum með kjarasamningi milli kjaraviðræðna. Starf samstarfsnefndar liggur að jafnaði niðri meðan kjaraviðræður standa yfir.

11.1.2

Skipan samstarfsnefndar Samningsaðilar hvor um sig skipa þrjá fulltrúa í samstarfsnefnd og þrjá til vara. Aðilar tilkynni gagnaðila formlega um skipan fulltrúa í nefndinni.

11.1.3

Framlagning erinda og málsmeðferð Erindum sem vísað er til úrskurðar samstarfsnefndar ber að fylgja greinargerð, ásamt tilheyrandi fylgiskjölum, þar sem ágreiningsefni eru skilgreind og sjónarmið hlutaðeigandi aðila eru rakin. Áðurnefnd gögn skulu berast samstarfsnefnd a.m.k. þremur dögum fyrir boðaðan samstarfsnefndarfund.

11.1.4

Ákvarðanir og úrskurðir samstarfsnefndar Samstarfsnefnd skal að jafnaði svara erindum innan fimm vikna frá því að þau voru fyrst borin formlega fram á fundi nefndarinnar. Verði samstarfsnefnd sammála um niðurstöðu gildir hún frá og með næstu mánaðamótum eftir að erindið var fyrst kynnt gagnaðila með sannanlegum hætti nema annað sé sérstaklega ákveðið. Fundargerðir samstarfsnefndar eru birtar á heimasíðum samningsaðila