Félag grunnskólakennara efnir til ársfunda þau ár sem aðalfundur er ekki haldinn. Aðalfundur er haldinn á fjögurra ára fresti.

Aðalfundur FG skal haldinn fjórða hvert ár innan sex mánaða fyrir eða eftir þing KÍ. Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins, sbr. þó 18. gr. Á aðalfundi eiga sæti með atkvæðisrétti:
⦁ nýkjörin og fráfarandi stjórn,
⦁ nýkjörin og fráfarandi samninganefnd,
⦁ nýkjörin og fráfarandi stjórn skólamálanefndar,
⦁ nýkjörin og fráfarandi kjörnefnd,
⦁ formenn svæðafélaga,
⦁ einn fulltrúi fyrir fyrstu 35 félagsmenn hvers svæðafélags en einn fulltrúi fyrir hverja 70 félagsmenn eftir það eða brot úr þeirri tölu sem umfram kann að vera.
Næsti aðalfundur FG verður haldinn árið 2030.