Fræðslu- og kynningarsjóður

Menntunarátak, fræðsluefni, rannsóknir, eflir trúnaðarmenn og fleira

Tilurð sjóðsins

Í kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) og Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) var árið 2014 samið um framlag í sérstakan sjóð sbr. bókun í samningi aðila. Frá og með gildistöku samkomulags þessa verði iðgjald sem nemur 0,1% af heildarlaunum félagsmanna lagt á sérstakan reikning þar til ákvörðun hefur verið tekin um framtíðarráðstöfun þess.

Ársfundur FG árið 2015 ákvað að setja á fót Fræðslu- og kynningarsjóð FG sem hefði eftirfarandi grunnmarkmið:

  • Styrkja menntunarátak starfandi félagsmanna FG með leyfisbréf til grunnskólakennslu til að afla sér fyrstu meistaragráðu.
  • Útgáfu á fræðslu- og kynningarefni um nýja strauma og stefnur í málefnum kennara og efni sem ætlað er að styrkja kennara í starfi.
  • Styrkja rannsóknir, ritgerðasmíði eða útgáfu á efni sem styrkir og bætir starf og starfsaðstæður kennara, auk þess að hafa jákvæð áhrif á kennarastarfið. Auglýsa skal eftir styrkþegum og verkefnum.
  • Styrkja og efla starf trúnaðarmanna.
  • Styrkja almennt fræðslu- og kynningarstarf félagsins og svæðafélaga þess.

Samráðsfundir stjórnar og svæðaformanna FG samþykkja styrki og upphæð þeirra. Að auki skuli skýrslur um ráðstöfun styrkja lagðar fyrir árs- og aðalfundi félagsins.

Um sjóðinn