Starfsheiti og röðun í launaflokka

Starfsheiti kennara og leiðbeinenda sem starfa í grunnskólum. Röðun í launaflokka.

Starfsheiti og röðun grunnskólakennara í launaflokka að finna í grein 1.3.1 í kjarasamningi

Grunnskólakennari (lfl. 233)

  • Hefur réttindi og sinnir störfum grunnskólakennara í samræmi við lög, aðalnámskrá og skólanámskrá.

Danskennari (lfl. 233)

  • Danskennari með viðurkenningu frá Dansráði Íslands vegna starfa sem danskennari.

Umsjónarkennari (lfl. 235)

  • Uppfyllir skilyrði sem grunnskólakennari og hefur umsjón með nemendum í bekk/námshópi. Hver nemandi skal hafa einn umsjónarkennara (sbr. lög nr. 91/2008 13 gr.).

Sérkennari (lfl. 235)

  • Uppfyllir skilyrði sem grunnskólakennari og hefur á hendi sérkennslu skv. skilgreiningu 2.gr. reglugerðar nr. 585/2010 um sérkennslu sem nemur a.m.k. 50% af starfi.

Náms- og starfsráðgjafi 1 (lfl. 236)

  • Uppfyllir skilyrði sem náms- og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms- og starfsráðgjafi í 25-49% starfi.

Náms- og starfsráðgjafi 2 (lfl. 238)

  • Uppfyllir skilyrði sem náms- og starfsráðgjafi skv. skilgreiningu laga nr. 35/2009 og er náms- og starfsráðgjafi í hálfu starfi eða meira.

Verkefnistjóri 1 (lfl. 238)

  • Uppfyllir skilyrði sem grunnskólakennari og er í 20% – 49% verkefnastjórn.

Verkefnisstjóri 2 (lfl. 241)

  • Uppfyllir skilyrði sem grunnskólakennari og er í 50% – 100% verkefnastjórn.


Starfsheiti og röðun leiðbeinenda í launaflokka að finna í grein 1.3.1.1 í kjarasamningi

Leiðbeinandi 1 (lfl. 226)

  • Hefur öðlast heimild til að kenna nemendum skv. undanþágu.

Leiðbeinandi 2 (lfl. 228)

  • Hefur öðlast heimild til að kenna nemendum skv. undanþágu og er í kennaranámi við háskóla (B.Ed námi).

Leiðbeinandi 3 (lfl. 228)

  • Hefur öðlast heimild til að kenna nemendum skv. undanþágu og hefur lokið háskólaprófi s.s BA/BS. sem nýtist í starfi.

Leiðbeinandi 4 (lfl. 229)

  • Hefur lokið B.Ed. prófi í grunnskólakennarafræðum eða hefur leyfisbréf á öðrum skólastigum og hefur öðlast heimild til að kenna nemendum skv. undanþágu.

Athugið: Takist ekki að fela kennara með leyfisbréf umsjón með nemendum í námshópi, má fela leiðbeinanda með undanþágu það verkefni (sbr. 19. gr. laga nr. 95/2019). Hann raðast þá 2 lfl. hærra en ella.