Samningur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum gildir til 31. mars 2028.

Kennarasamband Íslands skrifaði undir innanhússtillögu ríkissáttasemjara 25. febrúar 2025. Með tillögunni, sem er ígildi kjarasamnings, framlengist gildandi kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum til 31. mars 2028, með breytingum.