Reglurnar eru byggðar á 14. gr. laga Kennarasambands Íslands 2014
- Stjórnir svæðafélaga/félagsdeilda aðildarfélaga KÍ geta sótt um styrki til stjórnar KÍ. Umsókninni skulu fylgja samþykktir reikningar svæðafélags/deildar fyrir síðasta starfsár og undirrituð yfirlýsing formanns og gjaldkera um fjárhagslega stöðu félagsins/deildarinnar við undirritun umsóknar.
- Styrkumsókn skal fylgja umsögn stjórnar viðeigandi aðildarfélags KÍ. Hægt er að senda umsókn til formanns KÍ sem kemur umsókn til umsagnar aðildarfélags KÍ.
- Styrkir skulu einungis veittir til að styrkja félagsstarf og/eða samstarf svæðafélaga/deilda.
- Við afgreiðslu umsókna skal tekið mið af fjárhagsstöðu félagsins/deildarinnar og hver þörfin er fyrir umframfjármagn. Þetta getur verið m.a. vegna sérstaks verkefnis eða sérstakra aðstæðna svo sem mikils ferðakostnaðar.
- Stjórn KÍ úthlutar fjórum sinnum á ári styrkjum til svæðafélaga/deilda. Formaður KÍ leggur fram tillögu að úthlutun fyrir stjórn KÍ til samþykktar, að höfðu samráði við gjaldkera KÍ.
- Óheimilt er að veita fé til að styrkja einstaklinga.
- Óheimilt er að veita fé til að greiða kostnað af endurmenntun.
- Óheimilt er að veita fé til að styrkja einstaklinga eða hópa til þátttöku í fundum, námskeiðum eða ráðstefnum erlendis.
Reglur samþykktar í stjórn KÍ 22. janúar 2016.