Rökvís – fagfélag nýliða í kennslu

Hvað er Rökvís?

Rökvís – fagfélag nýliða í kennslu var stofnað 7. október 2024. Tilurð félagsins má rekja til áttunda þings KÍ sem fór fram sama ár en þar var samhljómur um mikilvægi þess að nýliðar í kennslu njóti stuðnings í starfi, ekki síst til þess að sporna við brottfalli á fyrstu árum í starfi kennara.

Rökvís starfar þvert á skólastig og geta nýliðar tekið þátt í starfi félagsins síðasta árið í námi og fyrstu fimm árin við kennslu. Sama á við um kennaranema sem starfa við kennslu og einnig geta kennarar sem flytja sig milli skólastiga fengið aðild að félaginu.

Lesa meira um stofnfund félagsins

Stjórn á stofnfundi félagsins. Frá vinstri: Gunnar Ásgrímsson, Elísabet Soffía Bender, Kristínv Helga Magnúsdóttir og Hrafnkell Hringur Helgason. Á myndina vantar Júlíönu Rose Júlíusdóttur.

Rökvís og samfélagsmiðlarnir

Stjórn Rökvís heldur útiFacebookhóp sem heitir Rökvís - Félag nýliða í kennslu, vettvang þar sem félagsfólk getur skrifað um sína reynslu, rætt málin, spurt spurninga, deilt námsefni og þar fram eftir götunum.

Þá er hægt að finna félagið á Instagram undir nafninu @rokvis_fnik og á TikTok undir heitinu @rkvs28.

Viltu ger­ast fé­lagi?

Hægt er að sækja um aðild að félaginu hér, og velja Félagsaðild -> Rökvís - Fagfélag nýliða í kennslu sem málaflokk. Einnig er hægt að hringja í síma 595-1111.

Nánar

Efnt var til samkeppni um nafn félagsins og barst fjöldi tillagna. Niðurstaðan varð sú að nafnið Rökvís var valið.

Elín Edda Þorsteinsdóttir, grafískur hönnuður, var fengin til að teikna merki félagsins og má sjá skírskotun til merkis KÍ og aðildarfélaganna. Merkið er nútímalegt en rímar vel við rúmlega aldarfjórðungsgamalt merki Kennarasambandins.