Fagfélag nýliða í kennslu stofnað

Í gær urðu þau tímamót að fagfélag nýliða í kennslu var stofnað á fundi í Stórholti, sal KÍ í Borgartúni.
Nýliðar í sal og í streymi hlýddu á fræðsluerindi í upphafi fundar. Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, fór yfir skipulag og starfsemi Kennarasambandsins, Guðrún Ragnarsdóttir prófessor og Svava Björg Mörk lektor kynntu áheyrendur fyrir verkfærakistu jafningja og Soffía Ámundadóttir fræddi þá um Menntafléttuna.
Þær Guðrún og Svava lögðu könnun fyrir nýliðanna. Aðspurðir um hverjar væntingar þeirra væru til kennarastarfsins sögðu þeir, nánast einróma, að starfið yrði gefandi, skapandi og skemmtilegt og samstarf gott. Þá sögðu flestir að samskipti við samkennara gengi vel og auðvelt væri að leita til þeirra eftir aðstoð. Erfiðara væri að fást við álag og manneklu og bekkjastjórnun, en agaleysi meðal nemenda hefði áhrif á kennslu. Aðspurð um hvernig stuðning þau þarfnist í starfi nefndu þau einna helst jafningjastuðning.
Félaginu komið í hendur nýliðanna
Þá var komið að stofnverkefnum og óskað eftir framboðum í fyrstu stjórn félagsins, áður en drög að samþykktum voru borin undir fund og samþykkt, ásamt stofnsamningi og stofnfundargerð. Hér er hægt að kynna sér félagið.
Stjórn hins nýja félags skipa þau Elísabet Soffía Bender, Gunnar Ásgrímsson, Hrafnkell Hringur Helgason, Júlíana Rose Júlíusdóttir og Kristín Helga Magnúsdóttir.
„Við höfum miklar væntingar um að þessi fundur marki ákveðið upphaf þess að þið, nýliðar í kennslu, takið sjálf umræðuna um þau fjölmörgu málefni sem tengjast starfinu ykkar og skólamálum, í stað þess að hlusta á aðra fjalla um ykkar málefni og stöðu. Raddir ykkar eru mikilvægar,“ sagði Jónína Hauksdóttir í opnunarávarpi.

Nýja stjórnin. Frá vinstri: Elísabet Soffía Bender, Kristín Helga Magnúsdóttir, Hrafnkell Hringur
Helgason og Gunnar Ásgrímsson. Á myndina vantar Júlíönu Rose Júlíusdóttur.
Tilurð félagsins
Ákveðið var á áttunda þingi KÍ 2022 að stofna fagfélag nýliða í kennslu. Mikilvægt er að nýliðar í kennslu fái stuðning í starfi, ekki síst til að sporna við brottfalli á fyrstu árum í kennslu. Liður í því er stofnun fagfélags nýliða í kennslu, þar sem nýir kennarar geta sótt sér stuðning, bæði faglegan og jafningjalegan, á fyrstu fimm árum í starfi.
Líkt og segir í samþykkt þingsins starfar félagið þvert á skólastig. Nýliðar geta tekið þátt í starfi félagsins síðasta árið í námi og fyrstu fimm ár kennslu. Það sama á við um kennaranema sem starfa við kennslu. Kennarar sem flytja sig milli skólastiga geta fengið aðild að félaginu.
Félagið er sjálfstætt starfandi með formann sem er tengilliður félagsins við Kennarasambandið. Fræðslunefnd KÍ sér um reglubundna fræðslu fyrir félaga fyrir hönd sambandsins.

„Við trúum því að með fundinum hér séum við að ýta úr vör stóru og mikilvægu verkefni. Við þurfum að eiga í uppbyggilegum samræðum um hvernig við viljum sjá störfin okkar þróast og takast á við áskoranir framtíðar,“ sagði varaformaður KÍ um fundinn.