Reglur Orlofssjóðs KÍ

Stjórn Orlofssjóðs er skipuð fulltrúum aðildarfélaga KÍ. Stjórnin setur reglur sjóðsins.

Siglufjörður

Aðild að sjóðnum

Aðild að Orlofssjóði KÍ eiga allir starfandi félagsmenn í Kennarasambands Íslands.

Einnig getur félagsmaður átt aðild að sjóðnum við aðstæður eins og;   

  • Í fæðingarorlofi, sé kosið að greiða stéttarfélagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum. 
  • Í atvinnuleysi, sé kosið að greiða stéttarfélagsgjald af atvinnuleysisbótum. 
  • Á sjúkradagpeningum, ef greitt er í stéttarfélagsgjald af sjúkradagpeningum. 
  • Í launalausu leyfi: Réttur til úthlutunar fellur niður á meðan launalausu leyfi stendur, en stofnast að nýju við fyrstu iðgjaldagreiðslu eftir það. Stjórn KÍ getur heimilað sjóðfélaga í launalausu leyfi að greiða félagsgjald eitt ár í senn og halda réttindum. 
  • Með aðild að Félagi kennara á eftirlaunum(FKE). Sjá nánar um kaflann um FKE. 

Réttindi að sjóðnum fást gegnum punktainneign, en hver félagsmaður sem er í 33% eða hærra starfshlutfalli ávinnur sér 24 punkta á ári, eða 2 punkta á mánuði. Punktar eru færðir inn eftir á. 

Punktaeign

Til að geta bókað og nýtt þjónustu OKÍ þarf að eiga orlofspunkta. Ef punktaeign fer niður fyrir mínus -23 punkta missa félagsmenn réttinn það árið eða þar til ný orlofspunktaúthlutun hefur átt sér stað (febrúar ár hvert). 

Félagsmenn ávinna sér 24 orlofspunkta á ári. 

Félagsmenn geta keypt viðbótarpunkta að hámarki 24 punkta á 365 daga tímabili og kostar hver punktur kr. 750. Hafa þarf samband við skrifstofu til að kaupa punkta. 

Útleiga orlofseigna

Reglur um útleigu orlofseigna eru ólíkar eftir því hvort um sumar- eða haust/vetrartímabil er að ræða. Nákvæmt ferli og dagsetningar eru auglýstar á heimasíðu KÍ og með tölvupósti til félaga. 

Óheimilt er með öllu að lána/framselja orlofshúsasamningana, hvort heldur er innan fjölskyldu eða til annarra.  

Ekki er heimilt að leigja nema eina orlofseign í einu. 

Sumartímabil

Sumartímabil er frá byrjun júní til loka ágúst (10-12 vikur). Sumarleiga er með tvennu móti: vikuleiga og dagsleiga. 

Vikuleiga telur 7 samfelldar nætur. Vikuleigum er úthlutað til félagsmanna.  

Félagsmenn hafa 3 vikur til að leggja inn 5 óskir um vikudvöl yfir sumartímann í gegnum orlofsvefinn og eru vikum úthlutað til þess sem á flesta punkta. Félagsmenn fá ekki úthlutaðar vikur tvö ár í röð þó punktaeign sé næg. Dæmi: Allir sem sækja um Tungubraut á Ísafirði fyrstu vikuna í júlí fara í pott og sá sem er með flesta punkta fær eignina.  

Dagsleiga (lágmarksleiga 2 dagar): Leiga er frá tveimur upp í sjö sólarhringa á sama stað. Opnað er skref fyrir skref fyrir bókanir á vefnum eftir punktaeign félagsmanna.  

Í orlofshúsum í eigu OKÍ er helgin bundin frá föstudegi til sunnudags, þ.e. ekki er hægt að leigja t.d. fimmtudag til laugardags. Leigutími er frá klukkan 16:00 á upphafsdegi og leigutaka ber að skila leigueign eigi síðar en klukkan 12:00 á skiladegi. 

Haust- og vetrartímabil

Haust- og vetrartímabil er frá síðari hluta ágúst fram í byrjun júní ár hvert. Reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“ gildir á þessum tíma. Helgarleiga er föst frá föstudögum til hádegis á mánudögum. Undanskildar eru íbúðir í Reykjavík og á Akureyri. 

  •  Hausttímabil (lok ágúst til fyrstu viku í janúar). Opnað er fyrir bókanir á orlofsvef á þessu tímabili í seinni hlutann maí. 
  • Vetrartímabil (janúar til byrjun júní).  Opnað er fyrir bókanir á orlofsvef á þessu tímabili í seinni hlutann í september.   
  • Sumartímabil (júní til lok ágúst) Úthlutun og opnanir fara fram í febrúar og mars. 

Afbókanir orlofshúsa

Ef afpanta þarf bókun, verður að tilkynna það skriflega til Orlofssjóðs, á netfang: orlof@ki.is. Ekki er nóg að hringja. Endurgreiðsla fer eftir aðstæðum og eru reglur um það útskýrðar betur hér fyrir neðan. 

  • Afpöntun sem berst eftir klukkan 16:00 mánudaga–fimmtudaga og eftir klukkan 15:00 á föstudögum telst afpöntun frá næsta virka degi.
  • Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutími hefst. 

Ef veikindi koma upp

Ef veikindi eða önnur meiriháttar áföll koma í veg fyrir orlofsdvöl skal tilkynna skrifstofu sjóðsins það skriflega svo fljótt sem auðið er ÁÐUR en leigutími hefst,  eða í síðasta lagi á hádegi þann dag sem dvölin á að hefjast.  

  • Full endurgreiðsla fæst gegn framvísun læknisvottorðs og punktastaða uppfærist þá. 
  • Ath. OKÍ greiðir ekki fyrir læknisvottorð.  
  • Skilyrði fyrir slíkri endurgreiðslu er að staðfesta þarf veikinda með læknisvottorði sem þarf að berast orlofssjóð á netfangið orlof@ki.is innan 14 daga frá afbókun.  

Óveður 

Ef veður eða aðrar óviðráðanlegar ytri aðstæður, svo sem ófærð, aðvaranir lögreglu eða veðurstofu, koma í veg fyrir orlofsdvöl endurgreiðir sjóðurinn 80% leigugjaldsins og uppfærir punktastöðu.  

  • Skrifleg beiðni verður að berast orlofssjóði á orlof@ki.is eigi síðar en á hádegi á þeim degi sem dvöl á að hefjast. 

Tímarammi afbókana  

  • Sé orlofshúsnæði afbókað með meira en tveggja vikna (14 daga) fyrirvara er leigugjald að fullu endurgreitt, en 2500-kr. þjónustugjald innheimt. Punktar eru þá bakfærðir að fullu. 
  • Sé orlofshúsnæði afbókað innan 14–8 daga áður en leiga hefst er 75% leigugjalds endurgreidd og punktar bakfærðir að fullu. 
  • Sé orlofshúsnæði afbókað áður en 7–3 dagar eru í upphaf leigutöku fæst 50% leigugjaldsins endurgreitt og punktar bakfærðir að fullu. 
  • Sé orlofshúsnæði afbókað þegar minna en 3 dagar (72 klst.) eru í upphaf leigutöku þarf að greiða fulla leigu fyrir húsið auk punkta. 

Reglur um tímamörk afbókana gilda einnig ef félagsmaður vill breyta leigu, t.d. færa til tímabil. Þjónusta sem keypt er samhliða leigu, s.s. er alltaf endurgreidd að fullu. Ef leigutaki þarf að afpanta og/eða breyta orlofsdvöl þarf að greiða breytinga- eða skilagjald sem kemur fram í gjaldskrá. Núverandi gjald er 2.500 kr. Ætíð þarf að afbóka og bóka aftur í slíkum tilfellum. 

Önnur þjónusta Orlofssjóðs

 Orlofssjóður býður gjafabréf frá Icelandair til kaupa á Orlofsvef. Það eru nokkrir möguleikar í boði undir flipanum Flugmiðar og kort.  Vinsamlega athugið að ekki er hægt að f á gjafabréf flugfélaga endurgreidd og því þarf að  athuga vel að kaupa ekki fleiri en þarf og lesa vel skilmála. 

Afsláttur á gistingu

Við innskráningu á Orlofsvef KÍ opnast flipi á vefnum sem kallast Ferðaávísun (hótel). 

Þar er að finna, ásamt fleiru, tilboð á hótelgistingum um allt land sem félagar geta nýtt sér. Hafa þarf samband við gististað og fá staðfestingu á dvalarmöguleika á tilboðsverði áður en ávísun er keypt.   

 Annar afsláttur

Á Orlofsvef er einnig að finna annan afslátt sem stendur félögum til boða. Sjá nánar undir flipanum Afslættir.

Umgengni, ábyrgð og skil leigueigna 

Leigutaka ber að hafa leigusamning við höndina meðan á dvöl stendur. 

Leigutaki þarf að sjá um að eignin sé vel þrifin við brottför. Ef frágangi eða annarri umgengni er ábótavant áskilur OKÍ sér rétt til að innheimta sérstakt gjald fyrir slæman viðskilnað. Ef um tjón eða skemmdir á eignum OKÍ er að ræða þá er, auk kröfu um greiðslu kostnaðar, heimild til að áminna félagsmann. Honum gefst þó tækifæri á að skýra mál sitt við stjórn OKÍ áður en endanleg áminning verður ákveðin. Ef annað sambærilegt brot er framið innan 2 ára missir sjóðfélagi rétt til nýtingar á orlofstilboðum næstu 5 ár hafi kostnaður við hvort tjón um sig farið yfir árlega viðmiðunarupphæð sem stjórn OKÍ ákveður. 

Leigutaki ber ábyrgð á umgengni við orlofseign, orlofssvæði og aðrar eigur á vegum Orlofssjóðs KÍ samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar og leiguréttar. Almennt skulu greiddar skaðabætur sem nemur kostnaði sem fellur á Orlofssjóð. 

Reikningur fyrir þrifum og/eða skemmdum verður sendur félagsmanni og er gjaldfrestur 15 dagar. Sé reikningur ekki greiddur innan tiltekins frests verður hann sendur í innheimtu hjá lögfræðingi með tilheyrandi kostnaði. 

 Reykingar og notkun rafretta er með öllu óheimil í húsum OKÍ.

Gæludýr 

Óheimilt er að hafa gæludýr í leiguhúsnæði á vegum Orlofssjóðs KÍ nema sérstaklega komi fram í leigusamningi að það sé heimilt.  

Lausaganga gæludýra í orlofsbyggðum Orlofssjóðs er bönnuð.  

Hjólhýsi / fellihýsi /tjaldvagnar o.fl. 

Óheimilt er að nota tjöld, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og annan slíkan búnað við orlofshúsin. 

Brot á reglum OKÍ 

Félagsmaður sem skráður er leigjandi ber fulla ábyrgð á húsnæðinu á meðan það er í leigu á hans nafni. 

Sektir 

  • Óþrifnaður: 25.000 kr. 
  • Óþrifinn heitur pottur/grill: 5.000 kr. 
  • Óheimil framleiga: 5.000 kr. fyrir hvern sólarhring sem leigutaki (félagsmaður KÍ) leigði húsið og tafarlaus brottvísun. 
  • Óheimilar reykingar: 25.000 kr. (á einnig við um rafrettur). 
  • Gæludýr þar sem ekki er heimilt: Brottvísun og 25.000 kr. sekt. 
  • Tjón eða skemmdir á húsbúnaði: Ef kostnaður fer yfir 25.000 kr. getur félagsmaður misst rétt til að leigja eignir Orlofssjóðs KÍ næstu 2–5 ár. 
  • Óheimilt tjald/tjaldvagn/hjólhýsi o.s.frv. við hús: 25.000 kr. 
  • Brottför of seint án samráðs getur varðað sektum kr. 10.000. 
  • Mæting of snemma án leyfis getur varðað sektum allt að kr. 10.000 auk leigu. 
  • Stjórn orlofssjóðs tekur ákvörðun um frekari sektir eftir þörfum. 

 

  Reglur samþykktar af stjórn Orlofssjóðs og stjórn Kí desember 2024.