Skipan í trúnaðarstörf Félags leikskólakennara

Fréttir|21. október 2021

Framboðsnefnd Félags leikskólakennara hefur skilað lista yfir frambjóðendur í trúnaðarstörf FL fyrir næsta kjörtímabil. Kosið verður í samninganefnd og skólamálanefnd á aðalfundi FL á næsta ári.

Framboðsnefnd Félags leikskólakennara kom saman fyrr í dag til að fara yfir framboðsmál félagsins – en frestur til að bjóða sig fram í trúnaðarstörf hjá FL rann út á miðnætti 20. október.

Fyrir liggur að stjórn Félags leikskólakennara og formaður eru sjálfkjörin. Ný stjórn verður skipuð Önnu Lydíu Helgadóttur, Hönnu Rós Jónasdóttur, Jóhönnu Stellu Oddsdóttur, Sveinlaugu Sigurðardóttur auk formannsins Haraldar Freys Gíslasonar.

Anna Lydía og Jóhanna Stella koma nýjar inn í stjórn. Laufey Heimisdóttir og Hanna Berglind Jónsdóttir gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.

Í kjörstjórn félagsins munu sitja Lóa Björk Hallsdóttir og Andrea Sigurjónsdóttir og í framboðsnefnd Björk Snorradóttir og Hrefna Ingólfsdóttir. Nýjar stjórnir taka formlega við á aðalfundi FL sem haldinn verður árið 2022.

 

Kosið í samninganefnd og skólamálanefnd

Fulltrúar í samninganefnd og skólamálanefnd FL verða kosnir á aðalfundi félagsins á næsta ári. Aðalmenn í samninganefnd eru fimm.

Frambjóðendur í samninganefnd eru:

  • Berglind Svava Arngrímsdóttir
  • Hanna Berglind Jónsdóttir
  • Hanna Rós Jónasdóttir
  • Helga Charlotta Reynisdóttir
  • Linda Ósk Sigurðardóttir
  • Lóa Björk Hallsdóttir
  • Marthen Elvar Veigarsson Olsen
  • Sveinlaug Sigurðardóttir

Fulltrúar í skólamálanefnd FL verða jafnframt kosnir á aðalfundi félagsins á næsta ári. Sjö bjóða sig fram. Aðalmenn í skólamálanefnd eru fjórir auk varaformanns FL.

  • Arnrún Magnúsdóttir
  • Ásbjörg Valgarðsdóttir
  • Birgir Smári Ársælsson
  • Gróa Sigurðardóttir
  • Pálína Hildur Sigurðardóttir
  • Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir
  • Steinunn Þórisdóttir

Á vefsíðu Kennarasambands Íslands er hægt að lesa sér til um hlutverk stjórnar og nefnda Félags leikskólakennara.