
Félag leikskólakennara
Félag leikskólakennara (FL) er annað fjölmennasta aðildarfélag Kennarasambands Íslands, með um 2.800 félagsmenn.
Formaður og fulltrúi starfa á skrifstofu FL


Félag leikskólakennara á sér langa sögu
Félag leikskólakennara var stofnað árið 1950 og hét þá Athöfn og skömmu síðar Stéttarfélagið fóstra. Fyrsti formaður þess var formaður var Elínborg Stefánsdóttir.
Árið 1965 var nafninu aftur breytt og fékk þá félagið heitið Fóstrufélag Íslands áður en því var að lokum breytt í Félag leikskólakennara. Félagið var í fyrstu stéttarfélag, svo fagfélag og svo var því breytt í sjálfstætt stéttarfélag árið 1988.
Félag leikskólakennara gerðist aðili að Kennarasambandi Íslands árið 2001 og er það annað fjölmennasta félag KÍ.
Lög Félags leikskólakennara voru samþykkt á aðalfundi félagsins 30. september 2022.
Níu svæðadeildir eru starfræktar innan Félags leikskólakennara og skiptast þær eftir landsvæðum
Samningsaðilar hafa í sameiningu útbúið sérstakt vinnuskýrsluform til að nota við skipulagið.
Birtar eru fundargerðir stjórna, ráða og nefnda sem starfa á vegum Kennarasambands Íslands.