Framboð til formanns og varaformanns KÍ

Framboðsnefnd Kennarasambands Íslands hefur hafið undirbúning kosningar um nýjan formann og varaformann KÍ.
Framboðsnefnd Kennarasambands Íslands hefur hafið undirbúning kosningar um nýjan formann og varaformann KÍ. Kjörtímabil sitjandi formanns og varaformanns rennur út í apríl 2018.
Samkvæmt lögum KÍ kjósa félagsmenn sér formann og varaformann á fjögurra ára fresti.
Kosning formanns Kennarasambands Íslands
- Frestur til að skila inn framboði rennur út 7. október 2017
- Kosning fer fram dagana 1. til 7. nóvember 2017
Kosning varaformanns Kennarasambands Íslands
- Frestur til að skila inn framboði rennur út 21. nóvember 2017
- Kosning fer fram dagana 14. til 20. desember 2017
Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið frambodsnefnd@ki.is fyrir miðnætti daginn sem framboðsfrestur rennur út. Í tilkynningu um framboð skal tiltaka nafn, kennitölu, aðildarfélag og vinnustað auk þess sem mynd af frambjóðanda þarf að fylgja.
Tilkynnt verður um framboð í miðlum KÍ um leið og þau berast.