Lög KÍ voru síðast uppfærð og samþykkt á 9. Þingi KÍ, sem fór fram í apríl 2026.

1. gr
Nafn félagsins er Kennarasamband Íslands, skammstafað KÍ. Heimili og varnarþing er í Reykjavík.
Sambandssvæðið tekur til alls landsins og innan þess eru eftirtalin aðildarfélög:
2. gr.
Hlutverk KÍ er að:
3. gr
Rétt til aðildar að KÍ eiga öll sem starfa við kennslu, stjórnun eða ráðgjöf í skólum, vinna við stofnanir og fyrirtæki sem sinna eða tengjast kennslu og fræðslumálum, sinna tengdum störfum í sinni faggrein að uppfylltu eftirtöldu skilyrði:
KÍ ákvarði launakjör eða semji fyrir viðkomandi skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda.
Félagsaðild kemur fram í ráðningarsamningi og/eða með skilum félagsgjalda til KÍ. Stjórn KÍ skal í samráði við viðkomandi starfsmann sambandsins ákveða félagsaðild að aðildarfélagi.
Enn fremur eiga rétt til aðildar að KÍ:
4. gr.
Stjórn KÍ er heimilt að veita félagsfólki í launalausu leyfi félagsaðild enda stundi það ekki aðra launaða vinnu eða sjálfstæðan atvinnurekstur. Stjórn KÍ skal setja nánari reglur um félagsaðild samkvæmt þessari grein.
Þeir aðilar sem uppfylla aðildarskilyrði að KÍ en uppfylla ekki skilyrði til aðildar að ákveðnu aðildarfélagi innan KÍ geta engu að síður sótt um að gerast félagar með beinni aðild að KÍ ef þeir svo kjósa og vinnuveitandi þeirra samþykkir. Þeir njóta allra félagslegra réttinda nema seturéttar á fundum sem takmarkast við ákvörðun stjórnar KÍ og/eða viðkomandi aðildarfélags. Þeir njóta þjónustu starfsfólks þess félags sem gerir kjarasamning þann er þeir taka laun eftir sem og þjónustu annars starfsfólks KÍ og lögmanna. Um aðild að vísinda-/endurmenntunarsjóði fer eftir kjarasamningsaðild.
5. gr.
Félagsaðild fellur niður ef félagi hættir í því starfi sem veitti honum aðild eða greiðslur félagsgjalda falla niður. Þeir sem gerast félagar í FKE halda þó félagsaðild samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Félagi getur ekki sagt sig úr Kennarasambandi Íslands eftir að ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin og þar til henni hefur verið formlega aflýst. Félagi sem segir sig úr félaginu á ekki tilkall til eigna þess.
6. gr.
Félagsfólk greiðir félagsgjald til Kennarasambands Íslands eftir ákvörðun þings. Launagreiðandi skal innheimta félagsgjald mánaðarlega.
Félagsfólk í launalausu leyfi greiðir félagsgjald samkvæmt ákvörðun þings. Félagsgjald þetta skiptist milli félagssjóðs og annarra sjóða í sömu hlutföllum og þau gjöld sem KÍ móttekur vegna annars félagsfólks. Hver einstaklingur er sjálfur ábyrgur fyrir greiðslu félagsgjalds í þessu tilfelli.
Lífeyrisþegar greiða ekki félagsgjald nema þeir haldi áfram störfum á föstum mánaðarlaunum.
Reikningsár sambandsins er almanaksárið.
7. gr.
Það félagsfólk sem greiðir félagsgjöld til Kennarasambands Íslands telst virkt félagsfólk.
Einungis virkt félagsfólk getur boðið sig fram, verið skipað og tekið að sér trúnaðarstörf fyrir Kennarasamband Íslands, aðildarfélög þess, sjóði, nefndir og ráð að undanskildum trúnaðarstörfum fyrir FKE.
Verði lengra en þriggja mánaða rof á greiðslu félagsgjalds félaga til Kennarasambands Íslands leiðir það sjálfkrafa til þess að félaginn er leystur frá öllum trúnaðarstörfum fyrir Kennarasamband Íslands, aðildarfélög þess, sjóði, nefndir og ráð að undanskildum trúnaðarstörfum fyrir FKE. Stjórn KÍ er þó heimilt að veita tímabundna undanþágu að hámarki 6 mánuði til áframhaldandi trúnaðarstarfa þrátt fyrir að félagi sé ekki virkur félagi.
Ráðið starfsfólk KÍ getur ekki boðið sig fram til trúnaðarstarfa innan KÍ eða aðildarfélaga þess. Þó getur stjórn KÍ eða aðildarfélaga þess falið ráðnu starfsfólki að sinna afmörkuðum trúnaðarstörfum, að undanskildum trúnaðarstörfum sem almennt er kjörið í, svo sem stjórnir, samninganefndir og skólamálanefndir aðildarfélaga.
8. gr
Aðild að KÍ eiga þau félög sem talin eru upp í 1. gr.
Heimilt er að stofna ný aðildarfélög innan KÍ ef aðrir hópar óska eftir aðild að sambandinu. Samþykkt þings þarf fyrir aðild nýs félags.
9. gr
Hlutverk aðildarfélaga er að:
10. gr.
Hvert aðildarfélag setur sér lög og kýs stjórn, samninganefnd og skólamálanefnd. Stjórnir aðildarfélaga skulu skipaðar allt að sjö manns, með formanni. Formaður og stjórn, aðildarfélaga skulu kosnar í atkvæðagreiðslum meðal félagsfólks viðkomandi aðildarfélags og skulu kosningarnar vera rafrænar og standa yfir í a.m.k. 72 klst. og vera lokið fyrir aðalfund viðkomandi félags. Ef aðeins einn býður sig fram til embættis skoðast viðkomandi sjálfkjörinn. Að öðru leyti skulu kosningar fara fram í samræmi við lög hvers félags og heimilt er að hafa þær rafrænar. Aðildarfélög skulu senda stjórn KÍ afrit af lögum sínum til samþykktar innan fjögurra vikna frá aðalfundi. Stjórn KÍ skal ganga úr skugga um að lög félags brjóti ekki í bága við lög KÍ. Stangist lög aðildarfélags á við lög KÍ gilda lög KÍ. Breytingar á lögum aðildarfélaga öðlast ekki gildi nema með samþykki stjórnar KÍ.
Í lögum aðildarfélaga KÍ skal kveðið á um skipulag deilda og svæðafélaga.
Formenn aðildarfélaga KÍ hafa yfirumsjón með rekstri þeirra og bera ábyrgð á öllum málaflokkum, þar með talið fræðslu- og endurmenntunarsjóðum og starfi í skóla- og kjaramálum. Þeir fara hver um sig með umboð sambandsins gagnvart undirbúningi, gerð og undirritun viðræðuáætlana, kjarasamninga og um önnur mál er tengjast samningasviðinu.
11.gr.
Stjórn aðildarfélags er jafnframt samninganefnd og formaður aðildarfélags er formaður samninganefndar. Hvert aðildarfélag hefur val um að kjósa allt að fimm fulltrúa sem ásamt stjórn félagsins mynda samninganefnd. Kosning skal fara fram í samræmi við lög hvers félags.
Hlutverk samninganefnda er:
Formaður aðildarfélags í umboði KÍ ber ábyrgð á undirritun kjarasamninga fyrir sitt félagsfólk og gerð og undirritun viðræðuáætlana vegna endurnýjunar þeirra sbr. einnig 10. gr. í lögum KÍ.
Formaður eða varaformaður KÍ starfar með samninganefnd aðildarfélags ef stjórn viðkomandi félags óskar.
Allur kostnaður vegna samninganefnda aðildarfélaga greiðist af viðkomandi félagi.
12. gr.
Á vegum aðildarfélaga starfa allt að sjö manna skólamálanefndir sem sinna faglegum málefnum fyrir félagsfólk þeirra. Aðildarfélögum er heimilt að fela stjórn félagsins að fara með þennan málaflokk og skulu þá gera einn stjórnarmann ábyrgan fyrir honum.
Hlutverk skólamálanefnda er:
Allur kostnaður vegna skólamálanefndar aðildarfélags greiðist af viðkomandi félagi.
13. gr.
Aðalfundir aðildarfélaga skulu haldnir fjórða hvert ár í tengslum við þing Kennarasambands Íslands. Ekki skulu líða meira en sex mánuðir milli þings KÍ og aðalfundar félags.
Á reglulegum aðalfundi skulu m.a. tekin fyrir þessi mál:
Stjórnum aðildarfélaga er heimilt að boða til aukaaðalfunda um tiltekin efni. Boða skal til aukaaðalfundar með a.m.k. 4 vikna fyrirvara þar sem tilefni fundarins kemur fram. Fundargögn skulu send út með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara. Aukaaðalfundur fjallar um tiltekin afmörkuð mál og hafa ákvarðanir aukaaðalfunda um slík málefni sama gildi og ákvarðanir reglulegra aðalfunda.
Skylt er að boða til aukaaðalfundar, svo fljótt sem auðið er, ef þriðjungur félags eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
Kostnaður vegna aðalfunda og aukaaðalfunda aðildarfélaga greiðist af viðkomandi félagi.
14. gr.
Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur, skulu stjórnir aðildarfélaga boða til ársfundar skv. lögum hvers félags. Á ársfundi er m.a. fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar eru lagðir fram til kynningar.
Kostnaður vegna ársfunda aðildarfélaga greiðist af viðkomandi félagi.
15. gr.
Þing KÍ skal ákvarða hverju sinni hvort veita skuli sérstöku fjármagni til að styrkja starfsemi/samstarf svæðafélaga/deilda aðildarfélaga innan KÍ. Ákveði þing sérstaka fjárveitingu í þessu skyni geta stjórnir svæðafélaga/deilda sótt um styrk til stjórnar KÍ. Styrkumsókn skulu fylgja reikningar svæðafélags/deildar ásamt umsögn aðildarfélags. Stjórn KÍ skal setja nánari reglur um styrkveitingar samkvæmt þessari grein og skulu reglurnar kynntar fyrir stjórnum svæðafélaga/deilda.
Styrkir samkvæmt þessari grein skulu einungis veittir til að styrkja félagsstarf/samstarf svæðafélaga/deilda. Óheimilt er að veita fé samkvæmt þessari grein til að styrkja einstaklinga eða til að greiða kostnað af starfsþróun.
16. gr.
Stjórn Kennarasambands Íslands hlutast til um að á hverjum vinnustað sé kjörinn trúnaðarmaður þar sem félagsfólk þess starfa, sbr. lög nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. Stjórnir aðildarfélaga skulu halda fundi og námskeið með trúnaðarmönnum svo oft sem þurfa þykir. Stjórn KÍ skipuleggur fræðslu fyrir trúnaðarmenn um mikilvæg réttinda- og hagsmunamál með það að markmiði að auka samstarf aðildarfélaga KÍ.
Trúnaðarmenn skulu kjörnir til tveggja ára í senn og skal stjórn viðkomandi aðildarfélags og forstöðumanni stofnunar tilkynnt skriflega um kjör hans. Hverfi trúnaðarmaður úr starfi í viðkomandi skóla eða stofnun áður en kjörtímabili hans lýkur skal kjósa trúnaðarmann í hans stað til tveggja ára.
17. gr.
Þing hefur æðsta vald í málum Kennarasambands Íslands, sbr. þó 36. gr. Halda skal þing KÍ í mars og/eða apríl fjórða hvert ár.
Á þinginu eiga sæti með atkvæðisrétti stjórn KÍ, varaformenn aðildarfélaga og einn fulltrúi fyrir hverja 50 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu sem umfram kann að vera. Tala fulltrúa miðast við félagatölu 1. desember árið áður en halda skal þing KÍ. Skulu þeir kosnir af aðildarfélögum, skv. reglum þeirra og er kjörtímabil þeirra milli reglulegra þinga.
Auk þess skal Félag kennara á eftirlaunum og Rökvís, fagfélag nýliða tilnefna þrjá fulltrúa hvort um sig á þingið.
Formenn Orlofssjóðs KÍ, Sjúkrasjóðs KÍ, Vinnudeilusjóðs KÍ, kjörstjórnar, framboðsnefndar, jafnréttisnefndar, vinnuumhverfisnefndar, siðaráðs og formenn annarra starfandi nefnda á vegum KÍ sem skipaðar eru samkvæmt ákvörðun þings svo og formenn skólamálanefnda aðildarfélaga skulu eiga seturétt á þingi með málfrelsi og tillögurétti. Hið sama gildir um starfsfólk KÍ.
Stjórn ákveður fundarstað og fundartíma. Þing skal boðað með a.m.k. 10 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á þingi þurfa að berast stjórn eigi síðar en 6 vikum fyrir þing, sbr. þó ákvæði 37. gr. um lagabreytingar. Þinggögn skulu birt á vef KÍ með þriggja vikna fyrirvara. Félagsfólk á rétt á að sækja þing til áheyrnar.
Heimilt er stjórn að boða til aukaþings um sérstök mikilvæg málefni. Skal aukaþing boðað með dagskrá með fjögurra vikna fyrirvara.
Kostnaður vegna þings KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
18. gr.
Á dagskrá þings skulu a.m.k. vera eftirtaldir dagskrárliðir:
19. gr.
Þau ár sem ekki er haldið þing KÍ, skal stjórn boða til ársfundar Kennarasambands Íslands. Á ársfundi eiga seturétt stjórn KÍ, stjórnir, skólamála- og samninganefndir aðildarfélaga KÍ, ásamt formönnum nefnda sem starfa samkvæmt lögum KÍ og nefnda sem starfa samkvæmt ákvörðun þings. Þá eiga jafnframt seturétt skoðunarmenn reikninga KÍ og aðrir sem stjórn KÍ ákveður hverju sinni.
Á ársfundi skal stjórn leggja fram endurskoðaða reikninga KÍ fyrir næstliðið ár til kynningar, skýrslu yfir starfsemi sambandsins og nefnda þess. Á ársfundi skal taka fyrir málefni sem varða innra starf, skólamál, kjaramál og önnur þau mál sem efst eru á baugi að mati stjórnar hverju sinni.
Kostnaður vegna ársfunda KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
20. gr.
Kjörtímabil stjórnar er milli þinga.
Formaður og varaformaður skulu kosnir í atkvæðagreiðslu meðal virkra félaga KÍ.
Atkvæðagreiðsla um kjör formanns og varaformanns skal fara fram í janúar og/eða febrúar á þingári, hún skal vera rafræn, standa yfir í 72 klst. og skal henni vera lokið eigi síðar en fjórum vikum fyrir þing. Ef aðeins einn býður sig fram til embættis formanns og/eða varaformanns skoðast viðkomandi sjálfkjörinn. Formaður og varaformaður KÍ geta ekki verið formenn í aðildarfélagi innan sambandsins.
Auk formanns og varaformanns sitja í stjórn KÍ formenn aðildarfélaga KÍ: Félags framhaldsskólakennara, Félags grunnskólakennara, Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda í framhaldsskólum, Félags stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélags Íslands.
Formaður aðildarfélags með fleiri félaga en 1000 skal fara með eitt viðbótaratkvæði í stjórn. Formaður aðildarfélags með fleiri félaga en 2500 skal fara með tvö viðbótaratkvæði í stjórn. Formaður aðildarfélags með fleiri félaga en 5000 skal fara með þrjú viðbótaratkvæði í stjórn. Varaformenn aðildarfélaga eru varamenn í stjórn KÍ.
Falli atkvæði jafnt á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns KÍ úrslitum.
Allur kostnaður vegna stjórnarfunda KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
21. gr.
Formaður KÍ er formaður stjórnar KÍ, og hefur yfirumsjón með rekstri þess. Varaformaður KÍ er staðgengill formanns.
22. gr.
Stjórn KÍ fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Það felur í sér, auk þess sem að neðan er talið, að taka ákvarðanir í stærri málum sem lúta að sjóðum og aðildarfélögum sambandsins. Stjórnin fer með framkvæmdavald í samræmi við stefnuskrá og starfsáætlun. Hún hefur ákvörðunarvald um málefni sambandsins innan marka laga þessara en lýtur þó fyrirmælum þings og ákvörðunum sem teknar eru í atkvæðagreiðslu. Stjórnin gætir þess að lögum félagsins og samþykktum sé framfylgt.
Stjórn KÍ ber ábyrgð á fjárreiðum og eignum KÍ. Stjórn KÍ skal sjá til þess að fullnægjandi bókhald, sbr. lög um bókhald nr. 145/1994, sé til staðar fyrir alla sjóði og félög innan sambandsins. Jafnframt ber henni að sjá til þess að fullnægjandi innra eftirlit sé til staðar varðandi rekstur og fjármuni félaga og sjóða sambandsins, m.a. til að koma í veg fyrir misfærslur í bókhaldi sem stafa af skekkjum, sviksemi eða öðrum ólögmætum athöfnum.
Stjórn KÍ setur reglur um launakjör og þóknanir, sbr. 25. gr.
Stjórn KÍ skipar tvo skoðunarmenn reikninga KÍ sem valdir eru með hlutkesti úr hópi þeirra fulltrúa sem aðildarfélögin tilnefna.
Stjórn KÍ setur stjórnum, nefndum og ráðum KÍ erindisbréf um störf sín.
Stjórn KÍ fylgir því eftir að kjarasamningar séu haldnir og að réttindi félagsfólks séu virt í hvívetna.
Hlutverk stjórnar KÍ í kjaramálum er að:
23. gr.
Stjórn KÍ setur sér verklagsreglur í upphafi kjörtímabilsins og skiptir með sér verkum samkvæmt þeim. Láti formaður eða varaformaður KÍ af embætti á kjörtímabilinu skal í atkvæðagreiðslu kjósa nýja í þeirra stað.
Stjórn KÍ skal halda fundi svo oft sem þörf krefur. Í forföllum aðalfulltrúa skal boða varafulltrúa. Formaður stýrir stjórnarfundum og annast dagskrá þeirra. Einfaldan meirihluta þarf til að ákvarðanir stjórnarfunda séu lögmætar, sbr. þó næstsíðustu málsgrein 20. gr. Stjórnarfundir eru lögmætir ef 2/3 hlutar stjórnar eru á fundi enda hafi fundurinn verið boðaður í tæka tíð.
Eftir að kjör nýs formaður og varaformaður KÍ liggur fyrir og þar til viðkomandi taka við embættum hafa þau rétt til setu á stjórnarfundum KÍ með málfrelsi og tillögurétti en án atkvæðisréttar.
24. gr.
Ritari er ábyrgur fyrir ritun fundargerða og skulu þær bornar upp til samþykktar eigi síðar en á næsta stjórnarfundi. Dagskrá stjórnarfunda og fundargerðir þeirra að öðru leyti en því sem skráð er í trúnaðarbók skulu birtar á vef KÍ svo fljótt sem auðið er.
25. gr.
Allar launagreiðslur og þóknanir á vegum KÍ, aðildarfélaga þess og sjóða skulu vera í samræmi við reglur sem stjórn KÍ setur.
26. gr.
KÍ skal semja við viðurkenndar fjármálastofnanir um vörslu og ávöxtun fjármuna KÍ og eftirtalinna sjóða í eigu þess: Orlofssjóðs KÍ, Sjúkrasjóðs KÍ og Vinnudeilusjóðs KÍ. Miða skal við að fjármunir séu ávaxtaðir á innlánsreikningum, í skuldabréfum eða hlutabréfum samkvæmt nánari fyrirmælum stjórnar KÍ.
Starfandi skal vera fjárvörsluráð innan KÍ. Hlutverk fjárvörsluráðs er að móta stefnu um ávöxtun fjármuna KÍ og sjóða, fylgjast með þróun peningamála og móta tillögur um ávöxtunarleiðir. Í ráðinu eiga sæti formaður KÍ, varaformaður KÍ, framkvæmdastjóri KÍ, gjaldkeri KÍ, hagfræðingur KÍ, og formaður stjórnar Vinnudeilusjóðs KÍ.
Heimilt er að stofna sérsjóði innan KÍ. Skal það gert með reglugerð fyrir hvern sjóð er þing samþykkir.
Ráðið skal fá til umfjöllunar og endurskoðunar fjárhagsáætlun KÍ þau ár sem ekki er þing. Ráðið skilar tillögum um breytingar á fjárhagsáætlun til stjórnar KÍ fyrir fund hennar í desember.
27. gr.
Framboðsnefnd skal skipuð sjö fulltrúum , einum frá hverju aðildarfélagi KÍ og jafn mörgum til vara. Skipunartími framboðsnefndar er milli reglulegra þinga. Stjórnir aðildarfélaga KÍ skipa í framboðsnefnd. Á fyrsta fundi skiptir nefndin með sér verkum.
Hlutverk framboðsnefndar er að auglýsa eftir frambjóðendum til formanns og varaformanns KÍ. Nefndin skal tryggja framboð til formanns og varaformanns sem kosnir eru í atkvæðagreiðslu í samræmi við lög þessi.
Við vinnu sína skal framboðsnefnd hafa til hliðsjónar jafnréttisstefnu KÍ.
Stjórn KÍ kallar nefndina saman í síðasta lagi ári fyrir þing.
Framboðsnefnd starfar eftir sérstökum reglum sem stjórn KÍ setur hverju sinni. Framboðsnefnd skilar lista með nöfnum frambjóðenda í kjöri formanns og varaformanns eigi síðar en 10 vikum fyrir þing til kjörstjórnar KÍ, en þó ekki síðar en 4 vikum fyrir kosningu.
Nefndinni er skylt að kynna alla frambjóðendur KÍ með hæfilegum fyrirvara fyrir kosningar.
Allur kostnaður vegna framboðsnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
28. gr.
Stjórn KÍ skipar 3 fulltrúa og 2 til vara í kjörstjórn sem starfa milli þinga úr hópi þeirra fulltrúa sem aðildarfélögin tilnefna. Skipunartími kjörstjórnar er milli reglulegra þinga.
Hlutverk kjörstjórnar er:
Kjörstjórn er heimilt að framlengja atkvæðagreiðslum vegna sérstakra aðstæðna og úrskurðar um úrslit í atkvæðagreiðslu, kjörskrárkærur, vafaatkvæði og önnur ágreiningsatriði sem upp kunna að koma í atkvæðagreiðslum sem hún sér um.
Allur kostnaður vegna starfa kjörstjórnar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
29. gr.
Skólamálanefndir aðildarfélaga mynda skólamálaráð ásamt formanni/varafor manni KÍ sem jafnframt er formaður skólamálaráðs. Rökvís, fagfélag nýliða í starfi á jafnframt þrjá fulltrúa í skólamálaráði. Skipunartími skólamálaráðs er milli reglulegra þinga.
Skólamálaráð heldur a.m.k. einn fund á ári. Formenn skólamálanefnda aðildarfélaga og formaður skólamálaráðs mynda framkvæmdastjórn. Að lágmarki 5 fulltrúar þurfa að sitja fund framkvæmdastjórnar svo fundur teljist lögmætur. .
Hlutverk skólamálaráðs er:
Allur kostnaður vegna skólamálaráðs KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
30. gr.
Siðaráð skal skipað 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími siðaráðs er milli reglulegra þinga.
Hlutverk siðaráðs er að:
Allur kostnaður vegna siðaráðs KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
31. gr.
Jafnréttisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími jafnréttisnefndar er milli reglulegra þinga.
Hlutverk jafnréttisnefndar er að:
Allur kostnaður vegna jafnréttisnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
32. gr.
Vinnuumhverfisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími vinnuumhverfisnefndar er milli reglulegra þinga.
Hlutverk vinnuumhverfisnefndar er að:
Allur kostnaður vegna Vinnuumhverfisnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
33. gr.
Umhverfisnefnd skal skipuð 3 til 5 fulltrúum sem stjórn KÍ skipar. Skipunartími umhverfisnefndar er milli reglulegra þinga. Hlutverk umhverfisnefndar er að:
Allur kostnaður vegna umhverfisnefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
34. gr.
Fræðslunefnd skal skipuð sex fulltrúum , einum fulltrúa frá KÍ, einum fulltrúa frá félögum kennara í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og tónlistarskólum og einum sameiginlegum fulltrúa stjórnendafélaga KÍ. Skipunartími fræðslunefndar er milli reglulegra þinga. Stjórnir aðildarfélaga KÍ skipa fulltrúa sína í fræðslunefnd.
Hlutverk fræðslunefndar er að gera tillögur um, skipuleggja og halda fræðslu á vegum KÍ fyrir trúnaðarmenn, forystusveit KÍ og aðildarfélaga, félagsfólk og aðra hópa. Fræðsla er skipulögð í samráði við stjórn, nefndir og ráð KÍ og formenn svæðafélaga/-deilda.
Allur kostnaður vegna fræðslunefndar KÍ greiðist af Kennarasambandi Íslands.
35. gr.
Stjórn KÍ getur boðað til almennra félagsfunda. Skylt er að boða til almenns fundar ef 10% virkra félaga eða fleiri krefjast þess skriflega og tilgreina fundarefni.
36. gr.
Um kjarasamninga og boðun verkfalls skal fara fram leynileg, almenn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem samningurinn nær til, samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna og lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 eftir því sem við á. Kjörskrá skal miða við gildandi félagatal KÍ. Þeir sem sannanlega greiða félagsgjald til KÍ en eru ekki komnir á félagaskrá eiga rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslu hverju sinni. Stjórn KÍ getur efnt til atkvæðagreiðslu um önnur mikilvæg málefni sem eigi falla sérstaklega undir þing.
37. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á þingi KÍ og þarf breytingin að hljóta 2/3 greiddra atkvæða til þess að öðlast gildi.
Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn 8 vikum fyrir þing og skulu þær kynntar þingfulltrúum eigi síðar en þremur vikum fyrir þing.
38. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þannig samþykkt á níunda þingi KÍ í apríl 2026.