Baráttan er ekki búin – fögnum fjölbreytileikanum

Regnbogafánar af ýmsum gerðum blakta víða þessa dagana enda standa Hinsegin dagar yfir. Hátíðin nær hámarki á laugardag þegar gleðigangan fer fram í Reykjavík og víða um land líka. Kennarasamband Íslands stendur heilshugar með réttindabaráttu hinsegin fólks.
Baráttan er ekki búin er yfirskrift Hinsegin daga að þessu sinni. Það eru orð að sönnu enda hefur gætt bakslags í málefnum hinsegin fólks, einkum er kemur að hatursorðræðu.
Gleðigöngur fara fram víða um land á laugardag en eðli málsins samkvæmt verður gangan fjölmennust í Reykjavík. Í Gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín,” segir á vef Hinsegin daga. Samfélagið er þessa dagana minnt á baráttu hinsegin fólks fyrir sjálfsögðum mannréttindum og gegn fordómum síðustu áratugi. Vissulega hefur mikið áunnist en eins og yfirskrift þessa árs ber með sér er baráttan ekki búin.
Kennarasamband Íslands styður heilshugar við réttindabaráttu hinsegin fólks og hvetur til þátttöku í gleðigöngum laugardagsins.
„Öll eiga jafnan rétt á að njóta mannréttinda óháð kyni, kynhneigð, búsetu, þjóðerni, líkamsgerð, trú, tungumáli og öðru. Öll eiga jafnan rétt á að vera þau sjálf," skrifaði Jónína Hauksdóttir í pistli á síðasta ári. Þetta rímar við inntak Skólastefnu KÍ en þar segir meðal annars eftirfarandi: „Allir nemendur eiga rétt á að njóta upplýsinga, menningar, vísinda, tengsla við aðra og jafnra tækifæra í skólanum, óháð breytum á borð við félagslega stöðu, búsetu, kyn, kynhneigð, líkamsgerð, móðurmál og námsgetu.“
Fögnum fjölbreytileikanum saman!
Fyrirmyndir og regnbogavottun
Hvernig eru hinseginvænir skólar? Er hinseginleiki til í tónlistarskólanum? Hvernig líður hinsegin börnum í skólanum?
Þetta eru bara nokkrar þeirra spurninga sem leitað var svara við á Skólamálaþingi KÍ sem fór fram síðasta haust. Yfirskrift þingsins var Fögnum fjölbreytileikanum í skólanum.
Fyrirlesarar voru Jónína Hauksdóttir, Íris Ellenberger, Svandís Á. Sigurðardóttir, Sólrún Óskarsdóttir, Hafþór Óskarsson, Harpa Jóhannsdóttir, Mara Birna Jóhannsdóttir og Tótla I. Sæmundsdóttir.
Hér að neðan gefur að líta stórskemmtilegar teikningar eftir Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Rán Flygering og hlekk á sjálft Skólamálaþingið.
Njótið vel!

Skólamálaþing KÍ fjallaði um hinsegin málefni innan skólakerfisins í fyrra. Elín Elísabet Einarsdóttir og Rán Flygering teiknuðu það sem fram fór.