Aðalfundur FF, haldinn fjórða hvert ár, hefur æðsta vald í málefnum félagsins.

Aðalfundur FF skal haldinn fjórða hvert ár. Halda skal aðalfund félagsins innan sex mánaða fyrir eða eftir þing KÍ. Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins.
Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur, skal stjórn félagsins boða til fulltrúafundar þar sem m.a. er fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun og starfsemi félagsdeilda auk þess sem reikningar félagsins og Vísindasjóðs FF og FS eru lagðir fram til kynningar.
Fulltrúafundir eru opnir öllum félagsmönnum.
Tæplega hundrað félagar í FF komu saman á aðalfundi félagsins í mars 2026. Fundað var á Selfossi að þessu sinni.
Formaður FF, Guðjón Hreinn Hauksson, setti fundinn. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru flutt erindi um virðismatsvegferðina. Oddur Jakobsson, hagfræðingur KÍ, ræddi kjaramálin, launaþróun, sögu samninga og velti upp væntingum til framtíðar.

Fulltrúar á aðalfundi FF 26 settu stefnu félagsins í kjaramálum, innra starfi og félagsmálum til næstu fjögurra ára. Þá voru samþykktar átta ályktanir um ýmis mál.