Hvað þarf að koma fram á kvittun?

• Nafn greiðanda og/eða kennitala.
• Nafn móttakanda og/eða kennitala.
• Upphæð greiðslu.
• Dagsetning greiðslu.
• Hvað er greitt fyrir: heiti námskeiðs og dagsetning.
• Staðfestingu á að reikningur sé greiddur: stimpluð kvittun fyrir greiðslu frá banka eða útprentun úr einkabanka (ef framangreindar upplýsingar koma fram).
Kreditkortakvittun er ekki gild kvittun ein og sér heldur þarf staðfestingu á námskeiði í tölvupósti þar sem fram kemur nafn og/eða kennitala greiðanda.
Athugið að kvittanir verða að vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli (öðru en finnsku) til að vera gildar. Ef kvittun er á öðru tungumáli verður löggilt þýðing að fylgja með.
Kvittun má ekki vera í wordskjali, hún verður að vera mynd, til dæmis jpeg eða pdf.