Eflandi hugsun – að vinna með reynsluheim nemenda

Upplýsingar
18. desember 2026
Kl. 13:30 - 15:00
Bókasafn Kópavogs
Félag heimspekikennara stendur fyrir viðburðaröðinni Heimspekitorgið í haust.
Markmiðið er að skoða hvernig heimspeki passar inn í kennslustofur á öllum stigum auk þess að kynnast hvert öðru og styrkja tengsl. Heimspekileg hugsun er áhrifarík leið í öllum námsgreinum til að nálgast kjarna hvers máls. Hún kemur víða við og því hvetjum við sérstaklega kennara með ólíkan bakgrunn til að koma og taka þátt.
Þriðji viðburður haustsins verður á Bókasafni Kópavogs þar sem þær Rósa Dögg Kristjánsdóttir og Zuzanna Korpak flytja erindið Eflandi hugsun - að vinna með reynsluheim nemenda.
Nánar er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu félagins