Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna

Upplýsingar
10. desember 2026
Kl. 10:00 - 15:30
Hilton Nordica
Miðstöð menntunar og þjónustu efnir til málþings sem ber yfirskriftina: Agerðir gegn ofbeldi meðal barna – árangur og næstu skref.
Tilefni málþingsins er að senn lýkur tveggja ára vinnu við innleiðingu 25 aðgerða stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum.
Á málþinginu verða kynntar afurðir vinnunnar, þar á meðal verkfæri og verklag sem nýtast fagfólki í daglegu starfi með börnum. Meðal annars verður fjallað um viðbrögð við krefjandi hegðun barna í grunnskólum og frístundastarfi og kynnt verkfærakista vegna eineltis, kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis (EKKÓ-mála). Jafnframt verður horft til þess hvernig byggja megi áfram á því sem áunnist hefur.
Öll börn eiga rétt á að búa við öryggi og vellíðan. Málþingið er gott tækifæri til að efla sameiginlega þekkingu og styrkja samstarf þeirra sem starfa í þágu barna.
Nánar má lesa um aðgerðahópinn og störf hans á vef Stjórnarráðsins.
Nánar um málþingið
- Hvenær: Fimmtudaginn 10. desember 2026, kl. 10:00–15:30. Móttaka gesta og morgunkaffi frá kl. 9:30.
- Hvar: Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
- Streymi: Málþinginu verður einnig streymt.
- Kostnaður: Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg.
- Skráningarfrestur: Til og með 6. desember.
Sætafjöldi er takmarkaður og við hvetjum áhugasöm til að skrá sig sem fyrst.
Nánari dagskrá verður birt síðar. Að málþinginu standa mennta- og barnamálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið.