Samfélagsmiðlastefna KÍ

Einu sinni á netinu, alltaf á netinu. Ertu í vafa, spurðu!

title

Kennarasamband Íslands er með öflugt starf á samfélagsmiðlum enda góð leið til að ná hratt og vel til félagsmanna. Megináhersla er á að upplýsa og fræða félagsmenn og auka umræðu um menntamál.


Markmið


  • Að efla ímynd kennara
  • Að gera kennarastarfið sýnilegt
  • Að auka umræðu um kennarastarfið
  • Að auka umræðu um menntamál


Áherslur


  • Við berum virðingu fyrir öllum og líðum ekki fordóma, níð, einelti eða móðganir
  • Við erum upplýsandi, áhugaverð og skemmtileg
  • Við tölum um og við alla af virðingu
  • Við veljum af kostgæfni það efni sem við birtum og deilum engu sem er meiðandi eða vafi leikur á að leyfi sé fyrir
  • Við viðurkennum mistök fúslega og leiðréttum hratt og örugglega
  • Við virðum friðhelgi einkalífsins með því að veita aldrei upplýsingar um einkahagi fólks eða einstök mál sem eru í gangi

Tíu góð ráð um hegðun á netinu

10 góð ráð um hegðun okkar á netinu

  1. Við berum sjálf ábyrgð á því efni sem við deilum á samfélagsmiðlum. Komum fram á netinu og samfélagsmiðlum eins og við gerum í vinnunni og opinberlega. Verum góðar fyrirmyndir.
  2. Tjáum okkur af sanngirni og virðingu um vinnuna á netinu og samfélagsmiðlum. Tölum á jákvæðan og uppbyggilegan hátt um skólann, samstarfsfólk, nemendur, foreldra/forráðamenn og aðra.
  3. Gætum trúnaðar við nemendur og aðstandendur þeirra á samfélagsmiðlum. Þetta á meðal annars við um félagslegar og efnahagslegar aðstæður, skoðanir, fatlanir, trúarbrögð, kynhneigð, líðan og heilsufar.
  4. Gætum persónuverndar nemenda okkar og samstarfsfólks. Birtum ekki myndir úr skólastarfi á samfélagsmiðlum eða vitnum í orð nemenda eða samstarfsfólks án samþykkis hlutaðeigandi.
  5. Ræðum notkun samfélagsmiðla við nemendur og foreldra/forráðamenn. Segjum þeim frá þeim viðmiðum sem við styðjumst við.
  6. Gætum þess að mismuna hvorki nemendum né foreldrum/forráðamönnum þeirra.
  7. Hvetjum til þess að í skólanum séu viðmið um notkun tölva, snjalltækja, tölvupósts og samfélagsmiðla, bæði fyrir starfsfólk og nemendur.
  8. Gætum að mörkum einkalífs og vinnu á netinu og í samfélagsmiðlum. Stofnum hópa fyrir samskipti við nemendur og foreldra/forráðamenn á samfélagsmiðlum. Gætum þess einnig að koma fram sem einstaklingur en ekki fulltrúi vinnustaðarins/skólans þegar við tjáum okkar persónulegu skoðanir á netinu.
  9. Sendum ekki persónulegan tölvupóst úr vinnunetfangi. Almennt séð er slíkur póstur sendur í nafni vinnustaðarins okkar.
  10. Munum að það sem einu sinni er farið á netið er erfitt eða ómögulegt að taka til baka. Ef við höfum miklar skoðanir á frétt eða innleggi á samskiptamiðli getur verið gott að hvíla málið aðeins áður en við bregðumst við. Ef og þegar við ákveðum að bregðast við gerum það á uppbyggilegan og málefnalegan hátt.