Menntun skilar sér margfalt til baka

Öll börn eiga rétt á örvun og hvatningu við hæfi og þau eiga rétt á að búa við stöðugleika og fagmennsku. Kennarar skipta því öllu máli fyrir nám og vellíðan barna.

Mótum framtíðina saman

... fyrir börnin

Öll börn eiga rétt á að lifa og þroskast og öll börn eiga rétt á menntun. Öll börn eiga rétt á örvun og hvatningu við hæfi og þau eiga rétt á að búa við stöðugleika og fagmennsku. Kennarar skipta því öllu máli fyrir nám og vellíðan barna.

... fyrir framtíðina

Menntun skilar sér margfalt til baka. Góð menntun barna eykur líkur á að þau fari í framhaldsnám og fjölgar þeim tækifærum sem bíða þeirra þegar þau eru komin á fullorðinsár. Börnum sem líður vel í skóla og búa við stöðugleika eru líklegri til að ná árangri. Þar með er framtíð þeirra og samfélagsins alls bjartari.

... fyrir betra samfélag

Samfélag sem hlúir vel að börnum sínum, veitir þeim jöfn tækifæri, menntun og þjónustu við hæfi hlúir um leið að foreldrum barna og eykur vellíðan þeirra.

 

Myndefni og textaspjöld fyrir vef og samfélagsmiðla.


„Cover“ mynd á Facebook

Meira efni fyrir vef og miðla