Yfirlýsing vegna fréttar um veggjalús
Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi og í Fréttablaðinu í morgun varð félagsmaður Kennarasambands Íslands fyrir því óláni að í orlofshúsi sem hann leigði var að finna veggjalús. Húsið sem um ræðir var „framleiguhús“, þ.e. ekki í eigu Kennarasambandsins, heldur leigt af KÍ sem leigði það áfram til félagsmanna sinna. Þegar KÍ gerði leigusamning við eiganda hússins gaf ekkert til kynna að þessa óværu væri að finna í húsinu, og húsið var að sjálfsögðu þegar tekið úr leigu þegar málið kom upp.
Af ýmsum ástæðum hefur talsvert dregist að lausn finnist í málinu og vill undirritaður, fyrir hönd Kennarasambands Íslands, biðja hlutaðeigandi velvirðingar á því. Grunnur að samkomulagi við félagsmanninn náðist þó fyrir helgi og gengið verður formlega frá því fyrir vikulok. Í því felst að þeir sem í þessu leiðindamáli lentu fá endurgreiddan kostnað sem af því hlaust.
Jafnframt er þessa dagana unnið að því að skýra réttarstöðu félagsmanna til að fyrirbyggja að sambærileg staða komi upp á ný. Félagsmenn verða upplýstir um niðurstöðu þeirrar vinnu á komandi mánuðum.
Fyrir hönd Kennarasambands Íslands,
Þórður Árni Hjaltested, formaður.