Yfirlýsing stjórnar KÍ

Fréttir|14. apríl 2023

„Hvers kyns mismunun, svo sem á grundvelli kyns, kynþáttar, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar, sem lítilsvirðir eða misbýður einstaklingi eða hópi sem fyrir henni verði, verður ekki liðin.“

Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir einstakling sem rekur skoðanir sínar gagnvart vinnu Samtakanna '78 innan íslenskra skóla. Einstaklingurinn er í blaðinu titlaður sem fulltrúi í vinnuumhverfisnefnd Kennarasambands Íslands. Það er ekki rétt þar sem viðkomandi er ekki lengur fulltrúi í nefndinni þar sem breytingar urðu á fulltrúum á síðasta þingi KÍ. Þegar hefur verið óskað eftir tafarlausri leiðréttingu þess.

Á áttunda þingi Kennarasambands Íslands í nóvember síðastliðnum var samþykkt jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára. Í stefnunni kemur skýrt í ljós að hvers kyns mismunun á grundvelli kyns, kynþáttar, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna, kyntjáningar, aldurs, fötlunar, skertrar starfsgetu, heilsufars, þjóðernis, litarháttar, uppruna, trúarbragða, skoðana, menningar eða stöðu að öðru leyti, sem lítilsvirðir eða misbýður einstaklingi eða hópi sem fyrir henni verði, sé ekki liðin. Hvort sem um er að ræða beina eða óbeina mismunun.

Skólamálaþing sambandsins sem haldið var í október bar yfirskriftina „fögnum fjölbreytileikanum“. Þar var áhersla var lögð á hinsegin málefni meðal annars með aðkomu Samtakanna '78 enda mikilvægt að íslenskir kennarar fái öfluga fræðslu um það hvernig við getum bætt líðan hinsegin ungmenna, sjá má erindi af þinginu hér. 

Samtökin '78 hafa um langt skeið verið samstarfsaðili skóla þegar kemur að vinnu gegn hvers kyns mismunun barna og ungmenna. Við hörmum það viðhorf sem fram kemur í umræddri grein og erum þess fullviss að íslenskir kennarar fylgja jafnréttisáætlun okkar og vinna að hagsmunum allra barna og gegn hvers kyns fordómum. Þar eru fulltrúar Samtakanna '78 öflugir liðsmenn í baráttunni, íslenskum ungmennum til heilla.

Fyrir hönd stjórnar Kennarasambands Íslands,

Magnús Þór Jónsson formaður