Yfirlýsing stjórnar Kennarasambands Íslands vegna deilu KÍ og Vísindasjóðs FF og FS
Um nokkurra ára skeið hafa stjórnir Vísindasjóðs Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) annars vegar og KÍ hins vegar átt í erfiðum og tímafrekum deilum. Þar er tekist á um verklag og vinnubrögð. Yfirlýsing stjórnar Vísindasjóðs, sem send var út í gær og fjallað var um í fréttum RÚV í gærkvöldi, er aðeins enn einn kafli í langri sögu. Stjórn Vísindasjóðs hefur tvisvar áður leitað til hins opinbera með málið og hefur það nú verið rekið fyrir dómstólum allt frá árinu 2012 en endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir.
Kennarasamband Íslands þjónustar kennara á öllum skólastigum. KÍ er eitt stéttarfélag en innan þess eru nokkur aðildarfélög, m.a. FF og FS, og sér starfsfólk skrifstofu KÍ um að þjónusta öll félögin sem og alla sjóði KÍ og félaga. Það samstarf hefur gengið vel. Umrædd deila er undantekningin frá því, en í tengslum við hana ákvað stjórn Vísindasjóðs FF og FS að flytja starfsemi sjóðsins út úr Kennarahúsinu.
Ársreikningar Kennarasambandsins og aðildarfélaga þess eru lagðir fram á þingum, árs- og aðalfundum. Ekki hefur verið ágreiningur á þessum fundum um meðferð fjármuna. Varðandi meðferð fjármuna Vísindasjóðs hafa óháðir endurskoðendur verið fengnir til að fara yfir verklag og umsýslu KÍ með fjármunum sjóðsins. Engar athugasemdir hafa komið fram í þeim athugunum. Endurskoðandi Vísindasjóðs hefur hins vegar talið að einhver gögn séu ekki til staðar og um það er deilt. Það má vera að skil milli sjóða Kennarasambandsins hefðu mátt vera skýrari en allar gjaldfærslur á Vísindasjóð FF og FS voru gerðar án athugasemda þáverandi sjóðsstjórnar.
Ávirðingum um að starfsmenn KÍ greiði á óeðilegan hátt fyrir gjafir, áfengi og veitingar er vísað á bug. Löng hefð er fyrir því að halda kveðjuhóf fyrir starfsmenn sem hætta eftir áralöng störf fyrir KÍ. Þar eru þeir kvaddir og þeim þakkað fyrir vel unnin störf. Ennfremur eru endrum og sinnum haldnar móttökur í Kennarahúsi fyrir gesti (svo sem kjörna fulltrúa í stjórnum og ráðum) og starfsmenn.
Að þetta mál sé til skoðunar hjá Sérstökum saksóknara rennir engum sérstökum stoðum undir að eitthvað ólöglegt sé á ferðinni eins og stjórn Vísindasjóðs hefur gefið í skyn, heldur segir það einungis að lögreglan er að sinna skyldum sínum. Ítrekað skal að óháðir endurskoðendur hafa margoft farið yfir fjárreiður KÍ. Þeir hafa aldrei gert athugasemdir við bókhald eða meðferð fjármuna. Stjórn KÍ mun því bíða eftir niðurstöðu embættis Sérstaks saksóknara.
Reykjavík, 3. desember 2015
Stjórn Kennarasambands Íslands.