Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra

Fréttir|19. október 2024

„Til að laða fólk í kennslu á ný þarf að setja menntamál á oddinn í Reykjavík og tala af virðingu um kennarastarfið." Þetta kemur fram í yfirlýsingu reykvískra kennara að loknum fundi í ráðhúsinu þar sem borgarstjóri baðst afsökunar á ummælum um kennara.

Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra

Undirritaðar, fulltrúar kennara í Reykjavík, áttu fund með Einari Þorsteinssyni borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær, vegna ummæla hans á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga um kennara. Ummælin vöktu mikla reiði kennarasamfélagsins og kennarar mótmæltu þeim við Ráðhús Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag. 

Á fundinum baðst borgarstjóri afsökunar á ummælum sínum um kennara og undirrituðum gafst tækifæri til að veita honum innsýn í kennarastarfið, jafnt í leik- og grunnskólum. 

Stórt verkefni er fram undan sem er að tryggja öllum börnum vel menntaða kennara en skólarnir standa nú frammi fyrir stöðugt vaxandi mönnunarvanda. 

Til að laða fólk í kennslu á ný þarf að setja menntamál á oddinn í Reykjavík og tala af virðingu um kennarastarfið. Einnig var bent á mikilvægi þess að kennurum stæðu til boða samkeppnishæf laun og því þyrfti að leysa kjaradeiluna sem fyrst. 

Starfsaðstæður kennara voru til umræðu, verkefnafjöldi á herðum kennara, hópastærðir og það ófremdarástand sem ríkir í húsnæðismálum skólanna en mikið er um rakaskemmdir og myglu í skólum borgarinnar sem hefur áhrif á heilsu starfsfólks og nemenda. 

Rætt var um mikilvægi þess að borgarstjóri sem æðsti yfirmaður kennara talaði ætíð á jákvæðan og uppbyggilegan hátt um kennara jafnt á opinberum vettvangi sem annars staðar og setti sig vel inn í þeirra mál. 

Á fundinum var lagt til að annar fundur yrði skipulagður með sömu fulltrúum að nokkrum vikum liðnum. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta og viljum sjá Reykjavík í fararbroddi í menntamálum. Til þess þarf vel menntaða, sátta kennara. 

Virðingarfyllst, 

  • Kristín Björnsdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur
  • Lilja Margrét Möller varaformaður Kennarafélags Reykjavíkur
  • Eygló Friðriksdóttir formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur
  • Þóranna Rósa Ólafsdóttir varaformaður Skólastjórafélags Reykjavíkur
  • Linda Ósk Sigurðardóttir formaður 1. deildar Félags leikskólakennara
  • Andrea Sigurjónsdóttir varaformaður 1. deildar Félags leikskólakennara
  • Guðrún Gunnarsdóttir formaður 1. deildar Félags stjórnenda í leikskólum
  • Jónína Einarsdóttir varaformaður 1. deildar Félags stjórnenda í leikskólum