Yfirlýsing frá stjórn Kennarasambands Íslands vegna lífeyrismála opinberra starfsmanna

Fréttir|13. desember 2016

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent alþingismönnum, formönnum annarra landssambanda launafólks og fjölmiðlum eftirfarandi yfirlýsingu v. lífeyrismála opinberra starfsmanna. Með henni vil stjórnin ítreka afstöðu sína varðandi fyrirhugaðar breytingar á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna sem verða til umræðu á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis á morgun: 

"Fram hefur komið í viðtölum við alþingismenn síðustu daga að eitt af þeim málum sem vilji er til að koma í gegn um þingið fyrir áramót sé frumvarp um breytingar á lögum um Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna.

Kennarasamband Íslands áréttar fyrri yfirlýsingu sína frá 2. október 2016 um að lagafrumvarp sem lagt var fram um málið fyrir kosningar endurspeglar ekki markmið og forsendur samkomulags um málið sem var undirritað 19. september 2016. Kennarasambandið hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á að jöfn verðmæti réttinda allra sjóðfélaga séu tryggð og samþykkti stjórn KÍ samkomulagið í trausti þess að launajöfnun á vinnumarkaði yrði náð sbr. sjöundu grein þess samkomulags sem gert var, en það er svohljóðandi:

Jöfnun launa
Það er sameiginleg stefna fulltrúa opinberra launagreiðenda og bandalaga opinberra starfsmanna að laun og önnur kjör hjá hinu opinbera séu samkeppnisfær. Vinna þarf sérstaklega að því að jafna laun einstakra hópa milli almenns og opinbers vinnumarkaðar og munu aðilar beita sér fyrir því að sérstaklega verði unnið að slíkri launajöfnun. Þetta gildir einnig um laun og kjör félagsmanna sem hefja störf í nýju aldurstengdu lífeyriskerfi.
(úr 7. grein um breytingar á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna)


Samtal aðila samkomulagsins um nauðsynlegar breytingar á frumvarpinu og eftir atvikum á viðeigandi samþykktum lífeyrissjóðanna LSR og Brúar hefur ekki farið fram.

Óþolandi er að þetta mikilvæga mál sé unnið áfram undir mikilli tímapressu og þannig komið í veg fyrir umræðu og kynningu málsins meðal opinberra starfsmanna.

Í aðdraganda samkomulagsins frá 19. september s.l. bentu samtök opinberra starfsmanna margoft á betri og einfaldari kost í málinu en felst í samkomulaginu: Með því að loka A-deildum LSR og Brúar fyrir nýjum sjóðfélögum er hægt að koma í veg fyrir að gengið sé á réttindi núverandi sjóðfélaga og inngreiðslur af svipaðri stærðargráðu og felast í samkomulaginu kæmu í veg fyrir að hækka þyrfti iðgjöld launagreiðenda í sjóðina.

Það er skoðun KÍ að framangreind lokunarleið með inngreiðslum í sjóðina sé raunhæf leið til þess að ljúka málinu fyrir áramót".