Yfirlýsing frá stjórn Kennarasambands Íslands
Þann 19. september skrifuðu Kennarasamband Íslands, Bandalag háskólamanna og BSRB undir samkomulag um breytingar á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna. Fram kemur í samkomulaginu að réttindi núverandi sjóðsfélaga skuli vera jafn verðmæt fyrir og eftir breytingar á skipan lífeyrismála og að laun á almennum og opinberum vinnumarkaði verði jöfnuð.
Daginn eftir var lagt fyrir Alþingi frumvarp um breyt¬ingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum. Nú þegar frumvarpið er til umfjöllunar á Alþingi hefur komið í ljós ný túlkun fulltrúa ríkisins. Af óskiljanlegum ástæðum og án málefnalegra sjónarmiða ætla fulltrúar ríkisins að snúa út úr samkomulaginu svo réttindi sjóðsfélaga verði í reynd ekki tryggð í frumvarpinu. Blekið hefur því varla þornað þegar kominn er upp alvarlegur ágreiningur um túlkun lykilákvæðis í samkomulaginu. Því treystir stjórn Kennarasambands Íslands sér ekki til þess að styðja nýtt frumvarp um lífeyrissjóði opinberra starfsmanna enda telur hún lagafrumvarp sem nú er til umfjöllunar á Alþingi skerða réttindi félagsmanna þvert á undirritað samkomulag um annað. Um leið skorar stjórn Kennarasambandsins á alþingismenn að hleypa frumvarpinu ekki í gegnum Alþingi í núverandi mynd.
Þegar þessi staða var komin upp fór stjórn Kennarasambandsins fram á að málinu yrði frestað fram yfir kosningar. Með því gæfist betri tími til að vinna það áfram og tryggja að markmið og forsendur samkomulagsins nái að fullu fram að ganga. Þessari tillögu höfnuðu fulltrúar stjórnvalda nú í morgun.
Stjórn Kennarasambandsins fordæmir þau vinnubrögð sem fulltrúar stjórnvalda hafa sýnt síðustu daga enda liggur nú fyrir að trúnaðarbrestur hefur orðið á milli KÍ og ríkisvaldsins.
Kennarasamband Íslands hefur tekið undir þau sjónarmið að lögum um lífeyrissjóði þurfi að breyta svo kerfið verði sjálfbært til framtíðar. Með samkomulaginu hefði það náðst jafnframt því að tryggja jöfn lífeyrisréttindi fyrir og eftir breytingar. Það eru því mikil vonbrigði að frumvarpið endurspegli ekki þessi markmið og forsendur samkomulagsins.
F.h. stjórnar Kennarasambands Íslands,
Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ