Yfirlýsing frá Kennarasambandi Íslands vegna PISA

Niðurstöður PISA 2015 og staðan í menntamálum á Íslandi.
Niðurstöður PISA 2015 og staðan í menntamálum á Íslandi
Kennarasamband Íslands lýsir yfir áhyggjum af niðurstöðum PISA rannsóknarinnar sem birtar voru í dag. Ísland hefur tekið þátt í PISA frá upphafi og eru niðurstöðurnar núna ekki frábrugðnar þeim meginlínum sem greina má á öllu tímabilinu 2000 til 2015, þ.e. að Ísland heldur áfram að síga niður á við. Eins og áður kemur fram óásættanlegur munur á stöðu nemenda eftir landshlutum, kyni og hópum.
Niðurstöðurnar þarf að taka alvarlega og um þær þarf að fara fram víðtæk málefnaleg og hófstillt umræða sem ekki er í upphrópanastíl. Mjög brýnt er að fram fari vönduð greining á þeim gögnum sem aflað hefur verið á löngum tíma og að unnið verði með niðurstöðurnar í víðtæku samstarfi stjórnvalda, kennara, skólastjórnenda og foreldra, og farið í aðgerðir sem ekki felast í skyndilausnum heldur eru til langs tíma og felast í að bæta starfsaðstæður kennara og námsaðstæður nemenda.
Íslendingum bar á síðustu öld gæfa til að byggja upp öflugt menntakerfi en það hefur undanfarin ár liðið fyrir langvarandi sparnaðarstefnu. Allt samfélagið vill öflugt menntakerfi sem er fyrir alla nemendur óháð stöðu og uppruna. Þetta verður ekki gert nema með því að setja í forgang aðgerðir sem felast í að tryggja eðlilega endurnýjun í stéttinni, viðhalda kennurum í starfi og að búa þeim góð kjör og starfsaðstæður til að sinna því meginverkefni sem þeir eru sérfræðingar í – sem er að mennta æsku landsins.
Brýnt samfélagslegt verkefni er að menntun og kennarastéttin séu mikils metin.