Yfirgnæfandi meirihluti samþykkir kjarasamning FG
Fréttir|5. júní 2018

Skrifað var undir kjarasamninginn í húsakynnum ríkissáttasemjara 25. maí síðastliðinn. Félag grunnskólakennara hefur verið án kjarasamnings síðan í desember á síðasta ári en nýi samningurinn gildir frá 1. desember 2017 til 30. júní 2019.
Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara hefur samþykkt nýjan kjarasamning í allsherjaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna FG stóð yfir dagana 31. maí til 5. júní 2018.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er sem hér segir:
- Á kjörskrá voru 4.689
- Atkvæði greiddu 3.423 eða 73%
- Já sögu 2.533 eða 74%
- Nei sögðu 837 eða 24,45%
- Auðir voru 53 eða 1,55%