Yfirgangur sem er ráðamönnum ekki sæmandi

Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti fordæmir áform mennta- og menningarmálaráðherra um sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans – skóla atvinnulífsins.
Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti fordæmir áform mennta- og menningarmálaráðherra um sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans – skóla atvinnulífsins. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið hefur sent frá sér. Vinnubrögðum ráðamanna er mótmælt og þau sögð einkennast af samráðsleysi og yfirgangi.
Ályktunin í heild hljóðar svo:
Ályktun Kennarafélags Fjölbrautaskólans í Breiðholti
„Kennarar í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti fordæma væntaleg áform mennta- og menningamálaráðherra um sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla við Tækniskólann – skóla atvinnulífsins og mótmæla þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru.
Virða ber þann mannauð sem býr í hverjum skóla og það starf sem þar er unnið.
Vinnubrögðin einkennast af samráðsleysi og yfirgangi sem eru ekki ráðamönnum sæmandi.“