VR lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara

Fréttir|16. nóvember 2024

Áður hafa BSRB, BHM, Sameyki og Fagfélögin hafa þegar lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara.

Réttur kennara til að sækja kjarabætur á þann hátt sem þeir telja best er óskoraður að mati stjórnar VR. Stjórn VR birti stuðningsyfirlýsingu við kjarabaráttu Kennarasambandsins í gær. 

Yfirlýsingin í heild

Stjórn VR lýsir yfir áhyggjum af stöðunni í kjaradeilu kennara og viðsemjenda þeirra og áhrifum á börn og fjölskyldur. Kjaradeilur á vinnumarkaði hafa óhjákvæmilega áhrif á launafólk og hvetur stjórnin aðila til að finna ásættanlega lausn eins fljótt og auðið er.

Að því sögðu lýsir stjórn VR yfir fullum stuðningi við baráttu kennara fyrir bættum kjörum. Kennarar, rétt eins og annað launafólk á íslenskum vinnumarkaði, hafa óskoraðan rétt til að krefjast kjarabóta, á þann hátt sem þeir telja best.

14. nóvember 2024
Stjórn VR

 

VR bættist þar með í hóp stéttarfélaga sem styðja kjarabaráttu kennara. BSRB, BHM, Sameyki og Fagfélögin hafa þegar lýst yfir stuðningi við yfirstandandi baráttu. 

Tengdar fréttir