Vorútgáfa Skólavörðunnar er komin út

Menntun og fagmennska, málefni tónlistarskólans, vellíðan í starfi, orlofsfréttir, erlent samstarf, hæfni kennara er meðal þess sem fjallað er um í nýútkominni Skólavörðu.
Vorútgáfa Skólavörðunnar er komin úr prentun og stendur dreifing blaðsins yfir.
Að venju er fjölbreytt efni í Skólavörðunni. Fjallað er um framtíð skólaþjónustu, áhugavert erlent samstarfs í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, er í ítarlegu viðtali þar sem hún segir frá starfi sínu og áherslum.
Sigrún Grendal, formaður FT, greinir frá stöðu tónlistarskólans, tónlistarstefnu og frumvarpi til laga um tónlist.
Ásta Steinunn Eiríksdóttir, gjaldkeri sjóða, veitir innsýn í starf sitt hjá KÍ en hún er meðal starfsmanna með lengstan starfsaldur.
Ester Ýr Jónsdóttir, líffræðingur og framhaldsskólakennari, fjallar um áskoranir sem kennarasamfélagið stendur frammi fyrir og tengir þær við kjaramál. Hún segir mikilvægt að fé sé varið til starfsþróunar sem síðan sé tengd við kjarasamninga. Þannig fjárfestum við í fagmennsku til framtíðar.
Sigrún Daníelsdóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu, segir frá innleiðingu aðgerðaáætlunar um geðrækt, stuðning við börn og ungmenni í skólum sem hluta af vinnu við Menntastefnu til 2030.
Þá er að finna í blaðinu áhugaverðar aðsendar greinar, umfjöllun um breytingaskeiðið, fjármálaleikana, nýja sumarbústaði Orlofssjóðs, Erasmus og Endurmenntun Háskólans. Krossgáta, Skólavarðan mælir með og Skólavarðan spyr eru á sínum stað sem endranær.