Vorráðstefna FDK 2020

Fréttir|13. mars 2020

Ráðstefnunni er frestað vegna aðstæðna í þjóðfélaginu.

Í ljósi síðustu frétta frá Danmörku ákvað Eva Theilgaard Brink í gærkvöldi að breyta ákvörðun sinni og hætta við að koma til Íslands í bili.

Hún sendir kveðjur, biðst afsökunar á stuttum fyrirvara og lofar að koma um leið og aðstæður batna.

 

Því þarf að fresta fyrirhugaðri vorráðstefnu FDK sem átti að vera núna á föstudaginn.

Vonast er til að það verði til þess að fleiri vilji koma síðar. Kannski eru félagsmenn hvort eð er ekki mjög spenntir fyrir því að hafa mannamót.