Vörðuleitið einkar vel staðsett í Reykjavík

Orlofssjóður festi kaup á tíu íbúðum í nýbyggðu húsi við Vörðuleiti í lok árs 2019. Íbúðirnar eru búnar þægindum og eru nútímalegar.
Vörðuleiti 2 er 10 íbúða fjölbýlishús á þremur hæðum í eigu Orlofssjóðs KÍ í 103 Reykjavík. Húsið er glænýtt og íbúðirnar hinar glæsilegustu. Þar er að finna tvær 3ja herbergja íbúðir, sjö 2ja herbergja íbúðir og eitt stúdíó sem allar eru settar upp fyrir tvo til fjóra gesti. Til stendur að bæta við svefnsófum í tvær stærstu íbúðirnar þannig að pláss verði fyrir sex manns í þeim.
Það er erfitt að finna betri staðsetningu í Reykjavík en Vörðuleitið. Þaðan er stutt í alla þjónustu og hægt að labba í Kringluna og Austurver við Háaleitisbraut þar sem flestar vörur og þjónustu er að finna. Fjölmargar leiðir Strætó stoppa í nágrenninu sem flestar fara beint á Hlemm og Lækjartorg. Göngu- og hjólastígakerfi borgarinnar hefur vaxið gríðarlega síðustu ár og auðvelt aðgengi að því í gegnum Fossvoginn sem liggur rétt fyrir neðan Vörðuleitið. Nauthólsvíkin er í göngufjarlægð fyrir þau sem vilja njóta sjósunds og svo tekur Elliðaárdalurinn við af Fossvoginum fyrir þau sem vilja njóta skógarins.
Fyrir þau menningarþyrstu liggur beinast við að fara í Borgarleikhúsið. Einnig er stutt í Hörpu og á alla viðburði sem boðið er upp á miðsvæðis í Reykjavík.
Greinin var birt í Ferðablaðinu, 1. tbl. 2023