Vor í sveitinni

Fréttir|17. mars 2016

deildar- og sérkennslustjórar til forystu

Símenntun Háskólans á Bifröst, í samstarfi við Félag leikskólakennara, býður deildar- og sérkennslustjórum í leikskólum upp á stjórnendanámskeið undir yfirskriftinni: Vor í sveitinni - deildar- og sérkennslustjórar til forystu!

Með námskeiðinu gefst tækifæri til að sinna starfsþróun sinni á fallegum stað í Borgarfirði í góðum félagsskap jafningja.

Markmiðið er að auka faglega og hagnýta þekkingu deildar- og sérkennslustjóra í leikskólum og efla þá sem stjórnendur á vettvangi þannig að þeir verði hæfari til að takast á við þau krefjandi verkefni sem þeim mæta í leikskólanum í dagsins önn.

Námskeiðið er sambland af fróðleik í formi fyrirlestra, hagnýtra verkefna og hópeflis.

Heildarverð fyrir námskeiðið er 57.000 kr. Athugið að hægt er að sækja um styrk í Vísindasjóð FL/FSL.

Námskeiðið fer fram á Bifröst í Borgarfirði fimmtudaginn 12. maí til föstudagsins 13. maí 2016.

Nánari upplýsingar og skráning má finna á heimasíðu ráðstefnunnar.