Vonandi byrjun á löngu tímabærum úrbótum
Leikskólastjórar í Reykjavík fagna þeim tíðindum að borgarstjórn hyggist bæta úr slæmu rekstrarumhverfi leikskólanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem leikskólastjórar í Reykjavík samþykktu á fundi nú síðdegis. Tilefnið er blaðamannafundur borgarstjóra, sem haldinn var um hádegisbil í dag, en þar kom fram að framlög til ýmissa þátta í leikskólum, svo sem sérkennslu, kaupa á námsgögnum og eflingu faglegs starfs, verði hækkuð á þessu hausti.
„Það er von okkar að fyrirhugaðar aðgerðir séu byrjun á löngu tímabærum úrbótum í rekstri leikskóla í Reykjavík og fyrsta skref í átt að betri tíð á fyrsta skólastiginu. Þrátt fyrir þessi fyrstu skref teljum við margt í starfsumhverfi leikskóla sem þurfi að skoða og bæta," segir í ályktun leikskólastjóranna.
Þá segir að það sé von leikskólastjóra að borgarstjórn horfi enn lengra fram á veginn og „haldi áfram á þessari braut framþróunar og endurbóta“. Að síðustu segir í ályktuninni að samstaða leikskólastjóra í þessu máli sé fagnaðarefni og ánægjulegt að slík samstaða geti leitt til úrbóta af þessu tagi.
Fréttatilkynning borgarstjóra vegna málsins.